Heimir Guðjónsson var að vonum svekktur eftir 1-0 tap gegn KR í kvöld.
Í miklum baráttuleik hafði KR betur með marki frá Pálma Rafni Pálmasyni í seinni hálfleik.
Hann var ánæður með fyrri hálfleikinn en ekki eins kátur með þann síðari.
Í miklum baráttuleik hafði KR betur með marki frá Pálma Rafni Pálmasyni í seinni hálfleik.
Hann var ánæður með fyrri hálfleikinn en ekki eins kátur með þann síðari.
Lestu um leikinn: KR 1 - 0 FH
„Mér fannst við ágætir í fyrri hálfleik en svo fannst mér við hætta að láta boltann ganga og við vorum ekki að hreyfa okkur nóg. Við fórum í löngu botlanna og KR-ingar eru með menn til að verjast þeim."
Atli Viðar Björnsson hefur farið mjög vel af stað á tímabilinu. Hann fékk færi í kvöld sem hann náði ekki að nýta.
„Hann fékk gott færi í fyrri hálfleik en Indriði náði að redda því."
Oftar en einu sinni var leikurinn nálægt því að leysast upp í slagsmál. Í einu þeirra skipta virtist Kassim Doumbia, leikmaður FH fara með hendurnar í Skúla Jón Friðgeirsson sem lá eftir.
„Mér fannst illa vegið að Kassim."
Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.























