Fylkir í Pepsi-deild kvenna er spáð 9. sæti í deildinni og þar með í fallsæti. Í dag er það hin unga og efnilega Hulda Hrund Arnarsdóttir sem sýnir á sér hina hliðina.
Fullt nafn: Hulda Hrund Arnarsdóttir
Gælunafn sem þú þolir ekki: Hullbertó Solano er einn ákveðinn einstaklingur að vinna með, ekki í uppáhalds en frumlegt.
Aldur: 19 ára going 20.
Hjúskaparstaða: Eins og gælunafnið bendir á þá er maður single.
Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki: 2011, 14 ára.
Uppáhalds drykkur: Kókómjólk, ekki sykurskert.
Uppáhalds matsölustaður: Nings.
Hvernig bíl áttu: Engan á mínu nafni, en myndi segja ég ætti einhvern hlut í Hondunni hjá mömmu.
Uppáhalds sjónvarpsþáttur: Föstudagar eru kallaðir Greysdagar hjá mér.
Uppáhalds tónlistarmaður: Mismunandi en núna er það Ed Sheeran.
Uppáhalds samskiptamiðill: Allir að breytast í það sama þannig hef engan uppáhalds. Nema Insta Explore er mjög skemmtilegt til að eyða tíma.
Skemmtilegasti “vinur" þinn á Snapchat: Berglind Hrund Jónasdóttir er í ruglinu! Get ekki annað en hlegið af þessari manneskju.
Hvað viltu í bragðarefinn þinn: Jarðarber, þrist og tromp svo ef ég er í stuði bæti ég daim ofan á.
Hvernig hljómar síðasta sms sem þú fékkst: „Hey það skiptir ekki máli, þu bara manst næst að láta vita þegar mjólkin er búin“
Hvaða liði myndir þú aldrei spila með: Mamma myndi líklegast aldrei eða allavega mjög seint fyrirgefa mér ef ég myndi spila með FH.
Besti leikmaður sem þú hefur mætt: Glódís Perla Viggósdóttir.
Mest óþolandi leikmaður sem þú hefur mætt: Klípudýrið og stuttbuxnatogarinn hún Sandra Sif, en elskaði að vera með henni í liði <3
Sætasti sigurinn: Allir sætir en þeir eru sætastir þegar eitthvað er í húfi.
Mestu vonbrigðin: Síðustu tvö tímabil en mjög lærdómsrík samt sem áður.
Uppáhalds lið í enska: Man Utd.
Ef þú fengir að velja einn leikmann úr öðru íslensku liði í þitt lið: Hana Hólmfríði Magnúsdóttur, hef alltaf langað að spila með henni.
Fyrsta verk ef þú yrðir formaður KSÍ: U23 kvenna landslið yrði sett í gang.
Efnilegasti knattspyrnumaður/kona landsins: Bryndís Arna Níelsdóttir.
Fallegasti knattspyrnumaðurinn á Íslandi: Rósaballsdeitið mitt, Emil Ásmunds.
Fallegasta knattspyrnukonan á Íslandi: Heiðdís Sigurjóns aka Dísa skvísa úr Breiðablik.
Hver er mesti höstlerinn í liðinu: Passið ykkur á henni Jasmín Erlu, hún er ekki eins saklaus og hún lítur út fyrir að vera.
Uppáhalds staður á Íslandi: Árbærinn en Nammiland er uppáhalds á laugardögum.
Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: Þegar við erum að hreinsa boltann og neglum boltanum í innkast og dómarinn ætlar að hoppa spígat yfir boltann en hann fer beint í punginn á honum og gert var hlé á leiknum meðan hann jafnaði sig. Svosem ekkert skemmtilegt fyrir hann en fyndið atvik.
Hvað er það fyrsta sem þú gerir þegar þú vaknar: Pissa.
Fyrir utan knattspyrnu, fylgist þú með öðrum íþróttum: Myndi ekki segja ég væri með puttann á púlsnum en hef mjög gaman að horfa á allar íþróttir og þá sérstaklega handboltann.
Í hvernig fótboltaskóm spilar þú: Adidas en mun víst breytast í Nike þegar ég fer út í Wake Forest í haust.
Í hverju varstu/ertu lélegastur í skóla: Er og verð alltaf léleg í stærðfræði.
Uppáhalds Eurovision lag frá upphafi: Eina lagið sem mér dettur í hug er með Birgittu Haukdal sem btw var í guða tölu á mínum yngri árum þannig Open Your Heart.
Vandræðalegasta augnablik: Svo sem alveg mörg augnablik en núna loka ég alltaf hurðinni á klefanum áður en ég fer úr fötunum...
Hvaða þrjá leikmenn tækir þú með þér á eyðieyju: Partý dýrið fröken Rakel Jónsdóttir, flipparann hana Sigríði Maríu og auðvitað þarf maður eitt stykki Queen Ernu Guðjóns.
Sturluð staðreynd um sjálfan þig: Ekkert sturluð en fáir vita að ég á tvíburabróðir.



