Valverde gæti endað á Old Trafford - Man Utd hefur aukinn áhuga á Ederson og Fernandes - Tekur Alonso við Chelsea?
   mið 13. maí 2026 08:30
Brynjar Ingi Erluson
Iraola kemur ekki lengur til greina hjá Man Utd
Andoni Iraola
Andoni Iraola
Mynd: EPA
Spænski stjórinn Andoni Iraola er ekki lengur í myndinni hjá enska úrvalsdeildarfélaginu Manchester United. Þetta segir enska blaðið Daily Mail.

Iraola hættir með Bournemouth þegar samningur hans rennur út eftir tímabilið, en hann hefur verið orðaður við Crystal Palace, Chelsea og Man Utd síðustu vikur.

Real Madrid hefur einnig verið að skoða Iraola en útlit er fyrir að Jose Mourinho sé að snúa aftur á Bernabeu.

Daily Mail segir Man Utd einnig vera úr myndinni, en það ætlar að gefa Michael Carrick tækifæri á næstu leiktíð. Hann stýrði liðinu aftur í Meistaradeild Evrópu og heldur betur náð að rétta úr kútnum síðan hann tók við af Ruben Amorim í byrjun árs.

Í augnablikinu eru því aðeins tveir líklegir möguleikar í stöðunni hjá Iraola, en það eru Chelsea og Crystal Palace. Bæði félög eru í leit að stjóra fyrir næsta tímabil. Oliver Glasner hættir með Palace þegar samningur hans rennur sitt skeið eftir tímabilið og þá var Liam Rosenior rekinn frá Chelsea í síðasta mánuði.
Slapp
banner
banner
banner