Stórlið á eftir Igor Thiago - Andre Onana til sölu - Endrick ekki til sölu - Mörg lið á eftir framherja Brentford
banner
   lau 14. febrúar 2026 11:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Margir stuðningsmenn Hull handteknir fyrir fordóma
Mynd: EPA
Hull City hefur tilkynnt að handtökur hafi verið gerðar eftir að stuðningsmenn sungu hómófóbíska söngva í 4-0 tapi liðsins gegn Chelsea í fjórðu umferð enska bikarsins.

Áhorfendum var tjáð í gegnum hátalarakerfið að hætta að syngja nýðsöngva seint í fyrri hálfleik leiksins á MKM leikvanginum í Hull City, og að eftirlit væri með öryggismyndavélum inni á vellinum. Það var síðan sagt í seinni hálfleik að handtökur hafi verið framkvæmdar en ekki staðfest hversu margar.

„Í kvöld beindust enn á ný hómófóbískir söngvar að stuðningsmönnum okkar. Þetta er algjörlega óásættanlegt. Við skulum vera skýr, sú staðreynd að þessir söngvar heyrast enn árið 2026 er blettur á leik okkar," segir í yfirlýsingu frá LGBTQ+ stuðningsmannahópi Chelsea.

„Þetta er ekki staður fyrir þetta, það er víst, á leikvanginum og heldur ekki opinberlega. Þetta er ekki gott. Leikvangurinn er ekki staður fyrir þetta og þetta er ástæðan fyrir því að þeir hafa verið handteknir," sagði Sergej Jakirovic, stjóri Hull.
Athugasemdir
banner