Man City nálægt því að krækja í Anderson - Liverpool vill Diomande til að fylla skarð Salah
banner
   fös 06. mars 2026 12:06
Elvar Geir Magnússon
Wiegman tjáir sig um íslenska liðið - „Verðum mikið með boltann“
PEI
Sarina Wiegman, landsliðsþjálfari Englands.
Sarina Wiegman, landsliðsþjálfari Englands.
Mynd: EPA
Sarina Wiegman, landsliðsþjálfari Englands, hefur tjáð sig um íslenska landsliðið. England og Ísland mætast í undankeppni HM á City Ground í Nottingham á morgun klukkan 12:30.

„Ísland er með mjög sterkt lið. Það er agað, líkamlega sterkt, beinskeytt og með mikinn hraða. Við sáum hvernig þær spiluðu gegn Spáni og það er erfitt að leggja þær," segir Wiegman.

England vann 6-1 sigur gegn Úkraínu í fyrsta leik sínum í riðinum.

„Við verðum mikið með boltann en það verður erfitt að brjóta niður vörn þeirra. Þetta verður erfiður leikur á morgun og við verðum að vera upp á okkar besta."

Ísland tapaði 3-0 fyrir Spáni í fyrsta leik og það er annað erfitt verkefni á morgun en England hefur orðið Evrópumeistari síðustu tvö mót.

Snæbjört Pálsdóttir, fréttakona Fótbolta.net, er á Englandi og færir okkur frekari fréttir í aðdraganda leiksins.
Athugasemdir
banner
banner