Man City nálægt því að krækja í Anderson - Liverpool vill Diomande til að fylla skarð Salah
banner
   fös 06. mars 2026 14:37
Elvar Geir Magnússon
Evra segir að Neville, Keane og Scholes séu að kasta steinum úr glerhúsi
 Patrice Evra með fyndin gleraugu.
Patrice Evra með fyndin gleraugu.
Mynd: EPA
Michael Carrick.
Michael Carrick.
Mynd: EPA
Patrice Evra segist ekki botna í þeirri neikvæðni sem ríki hjá Gary Neville, Roy Keane og Paul Scholes í garð Michael Carrick. Þríeykið hefur talað gegn því að Carrick fái stjórastarf Manchester United til frambúðar.

Athygli vakti í vikunni þegar Scholes skaut á Carrick á Instagram og sagði að spilamennska United hefði verið ömurleg síðustu fjóra leiki undir hans stjórn.

„Ég vona að Paul Scholes hafi ekki skrifað þetta í alvöru. Ég vona að Instagrammið hans hafi verið hakkað. Hann var þöglasti leikmaður sem ég hef spilað með en nú er hann að varpa sprengjum í fjölmiðlum," segir Evra sem vann fimm Englandsmeistaratitla sem leikmaður Manchester United.

„Ég skil ekki af hverju Michael Carrick fær ekki stuðning frá þeim. Hann er einn af okkur og er að standa sig mjög vel. Þetta fer í taugarnar á mér því við viljum vera í topp fjórum og þessi ummæli eru ekki nauðsynleg. En þetta gerist þegar þú vinnur í sjónvarpi, þú getur ekki verið jákvæður, þú þarft að vera neikvæður."

Gaf þeim fisk og franskar
Evra talar þá um að þeir sjálfir hafi ekki staðið undir væntingum þegar þeir hafa reynt fyrir sér sem stjórar. Þeir séu í raun að kasta steinum úr glerhúsi.

„Flestir þessara manna eru reknir um leið og þeir fá stjórastarf. Ég sagði við Neville að það væri auðvelt að vera að blaðra í sjónvarpinu. Þegar hann var hjá Valencia var hann beðinn um að gera paellu en hann gaf þeim fisk og franskar. Það var sagt bless við hann eftir þrjá mánuði."

„Fólk má ekki gleyma því hvað þeir hafa sjálfir gert sem stjórar. Sem leikmenn eru þeir goðsagnir en sem stjórar hafa þeir ekki gert góða hluti. Að þeir séu að tala og reyna að drepa feril hjá stjóra, það er aðeins of mikið."

Neville entist 28 leiki sem stjóri Valencia og Scholes stýrði Oldham í sjö leiki og Salford um stuttan tíma tvívegis. Keane átti misjafna tíma hjá Sunderland og Ipswich. Þeir hafa allir kallað eftir því að Manchester United ráði mann með öfluga afrekaskrá úr efstu hillu í stað þess að gefa Carrick traustið.

Enskir fjölmiðlar velta því fyrir sér hvers vegna Scholes standi ekki með sínum gamla liðsfélaga. Hann gagnrýndi Carrick fyrst 2021 þegar hann sakaði hann um að hafa komið illa fram gegn Ole Gunnar Solskjær. Carrick tók við sem bráðabirgðastjóri þegar Solskjær var rekinn en Scholes sagði að það hefði verið illa gert af honum. Carrick hafði verið í teyminu hjá Solskjær.
Enski boltinn - Hveitibrauðsdagarnir að baki
Athugasemdir
banner
banner