Pep Guardiola, stjóri Manchester City, er þektur fyrir að ræða reglulega við leikmenn úti á velli eftir leiki - þá bæði leikmenn síns liðs og leikmenn andstæðinganna.
Framundan hjá City er leikur gegn Newcastle í enska bikarnum og Eddie Howe, stjóri Newcastle, var spurður út í Guardiola og hans samtöl við leikmenn andstæðinganna.
City er orðað við Tino Livramento, Bruno Guimaraes og Sandro Tonali hjá Newcastle og hefur Guardiola sést tala við þá tvo síðastnefndu eftir leiki.

„Ég veit ekki um hvað þessi samtöl eru, ég eyði ekki tíma í að komast að því. Ég held að þetta fari í taugarnar á mér, þetta er eitthvað sem Pep gerir reglulega við marga leikmenn. Ég held þetta sé ekki persónulegt gagnvart okkur. Hann er mikill fótbolta unnandi og hann er með mismunandi sambönd við leikmenn. Eg ber mikla virðingu fyrir Pep og hvernig hann þjálfar og stýrir hefur verið frábært fyrir ensku úrvalsdeildina og fóboltann í heild. Hans aðferðir hafa verið byltingarkenndar og þetta er bara hluti af hans sálfræði," sagði Howe.
Leikurinn á morgun hefst klukkan 20:00 og fer fram á St. James' Park, heimavelli Newcastle. Sigurliðið fer áfram í 8-liða úrslit keppninnar.
Athugasemdir