Man City nálægt því að krækja í Anderson - Liverpool vill Diomande til að fylla skarð Salah
   fös 06. mars 2026 16:40
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Heimir skýtur til baka á Davíð: Kom inn í meistaraflokk og ekki búið að kenna honum neitt
Heimir Guðjónsson tók við FH aftur eftir tímabilið 2022 og kom FH í efri hluta Bestu deildarinnar öll tímabilin sem þjálfari liðsins.
Heimir Guðjónsson tók við FH aftur eftir tímabilið 2022 og kom FH í efri hluta Bestu deildarinnar öll tímabilin sem þjálfari liðsins.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Davíð Þór Viðarsson lék undir stjórn Heimis á sínum tíma. Hann hefur verið í starfi sem yfirmaður fótboltamála hjá FH undanfarin ár.
Davíð Þór Viðarsson lék undir stjórn Heimis á sínum tíma. Hann hefur verið í starfi sem yfirmaður fótboltamála hjá FH undanfarin ár.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Baldur Kári var í stóru hlutverki hjá FH síðasta sumar.
Baldur Kári var í stóru hlutverki hjá FH síðasta sumar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Heimir Guðjónsson, fyrrum þjálfari FH og núverandi þjálfari Fylkis, var gestur í Útvarpsþættinum Fótbolti.net síðasta laugardag. Hann var þjálfari FH tímabilin 2023-2025, en það var hans annað skeið í þjálfaraúlpunni í Kaplakrika. Á fyrra skeiðinu raðaði Heimir inn titlum, en FH liðið í dag er ekki jafnöflugt og fyrir um áratug síðan.

Heimir var í viðtalinu m.a. spurður út í ummæli Davíðs Þórs Viðarssonar, yfirmanns fótboltamála hjá FH, frá því fyrr í vetur.

FH tók ákvörðun í fyrra um að breyta um stefnu og leggja enn frekari áherslu á að yngri leikmenn spili meira á komandi tímabili. Ákveðið var að endursemja ekki við Heimi og var Jóhannes Karl Guðjónsson ráðinn. FH vill að leikmenn á 2. flokks aldri fengju fleiri mínútur en á síðasta tímabili.

Heimir sagði við Fótbolta.net í vetur að það væri hlutverk Davíðs sem yfirmanns fótboltamála, að ungu leikmennirnir væru nógu góðir til að spila með FH í Bestu deildinni.

Davíð er hins vegar á þeirri skoðun að það sé hlutverk þjálfarans að hjálpa mönnum að verða nægilega góðir. „Þú færð kannski 2. flokks strák inn í æfingahópinn hjá þér þegar hann er 17 ára og sá er búinn að vera hjá þér í tvö ár. Ég er þar að ég set þá kröfu á þjálfarana mína að þeir hjálpi þeim leikmanni að vera tilbúinn," sagði Davíð meðal annars.

Þurfti að kenna honum allt og það tók ár
Þá að svari Heimis í viðtalinu síðasta laugardag. Hann tekur ungan leikmann, Baldur Kára Helgason, sem dæmi og hrósar honum fyrir dugnað. Hann segir að þrátt fyrir mikinn dugnað hjá Baldur hafi það tekið ár fyrir Heimi að gera hann tilbúinn.

„Það er svo auðvelt fyrir mig að svara þessu. Baldur Kári (Helgason), sem dæmi, ég fæ hann í hendurnar, hann er dæmi um leikmann sem er fyrstur inn fyrir æfingar og síðastur út - mjög duglegur að æfa. Þegar þú ert með svoleiðis menn, þá er auðvelt að vinna með þá, þá er þetta bara kennsla og ekki neitt annað. Hann kom inn í meistaraflokk og það var ekki búið að kenna honum neitt þegar ég tek við honum. Það tók mig eitt ár að kenna honum, fara yfir hvernig best væri að spila. Hann þurfti eins árs aðlögunartíma og svo spilaði hann frábærlega síðasta sumar."

„Punkturinn minn er sá að ef ég hefði fengið hann í hendurnar, hefði ekkert þurft að kenna honum því það væri búið að kenna honum allt í gegnum yngri flokka, þá hefði hann bara getað byrjað að spila strax, hefði ekki verið neitt vesen,"
sagði Heimir.

Miðað við orð Heimis má ætla að hann vilji að leikmenn séu nær því að verða tilbúnir þegar þeir koma inn í meistaraflokkshóp heldur en raunin var þegar hann var þjálfari liðsins - þeir spili ekki nema þeir séu tilbúnir.

Baldur Kári er fæddur 2005. Hann byrjaði fimm leiki 2024 og spilaði alls í 13 leikjum eftir að hafa spilað örfáar mínútur 2023. Á síðasta tímabili byrjaði hann svo 24 leiki og í síðasta mánuði var hann verðlaunaður fyrir gott tímabil með sínum fyrsta A-landsleik.

Hægt er að hlusta á viðtalið við Heimi í spilaranum hér að neðan.
Útvarpsþátturinn - Heimir og hættulegar aðstæður
Athugasemdir
banner