Man City nálægt því að krækja í Anderson - Liverpool vill Diomande til að fylla skarð Salah
   fös 06. mars 2026 10:56
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Man Utd og fleiri stórlið berjast um ungan leikmann Fulham
Mynd: Fulham
Manchester United er á meðal félag sem hafa mikinn áhuga á enska U19 landsliðsmanninum Samuel Amissah.

Amissah er miðvörður sem er á mála hjá Fulham.

Arsenal og Chelsea eru einnig sögð hafa áhuga á kappanum. Hann er átján ára og er búist við því að hann yfirgefi Fulham í sumar þegar samningur hans rennur út.

Amissah spilar með varaliði Fulham. Hann hefur fimm sinnum verið á bekknum í úrvalsdeildinni, einu sinni í bikarnum og einu sinini í deildarbikarnum, en hefur ekki komið við sögu.

Hann á að baki 24 leiki fyrir yngri landslið Englands.


Athugasemdir
banner
banner