Man City nálægt því að krækja í Anderson - Liverpool vill Diomande til að fylla skarð Salah
   fös 06. mars 2026 18:22
Ívan Guðjón Baldursson
Meiðsli Ronaldo alvarlegri en talið var - Flýgur til Spánar
Mynd: EPA
Cristiano Ronaldo er á leið til Spánar þar sem hann heldur áfram endurhæfingu eftir að í ljós kom að meiðsli hans eru alvarlegri en talið var í fyrstu.

Jorge Jesus þjálfari Al-Nassr staðfesti þetta í dag, en sádi-arabíska deildin fór aftur af stað í gær eftir vikulanga pásu vegna stríðsástands.

„Eftir frekari rannsóknir hefur komið í ljós að meiðslin sem Cristiano Ronaldo varð fyrir eru alvarlegri en við bjuggumst við. Hann fer því til Spánar í endurhæfingu líkt og aðrir leikmenn Al-Nassr hafa gert í fortíðinni," sagði Jesus á fréttamannafundi fyrir leik Al-Nassr sem tekur á móti Neom SC annað kvöld.

„Hann þarf að gangast undir sérstaka endurhæfingu í Madríd og við vonumst til að fá hann aftur til liðs við okkur sem fyrst."

Ronaldo er búinn að skora 21 mark og gefa 2 stoðsendingar í 22 leikjum á yfirstandandi deildartímabili. Hann er þriðji markahæsti leikmaður deildarinnar, tveimur mörkum á eftir Ivan Toney sem er með 23 mörk í 23 leikjum.

Ronaldo hefur ekki unnið sádi-arabísku deildina frá félagaskiptunum fyrir rúmlega þremur árum síðan, en núna er Al-Nassr í harðri titilbaráttu við stórveldin Al-Hilal og Al-Ahli sem eiga bæði heimaleiki í kvöld.

   03.03.2026 18:09
Ronaldo var ekki í þotunni - Enn á æfingasvæðinu

Athugasemdir
banner
banner