Ísland mætir Evrópumeisturum Englands fyrir fullum velli í Skírisskógi á morgun í undankeppni HM 2027.
Flautað verður til leiks klukkan 12:30 á City Ground, heimavelli Nottingham Forest. Völlurinn tekur rúmlega 30.000 manns í sæti og er ljóst að enska liðið mun fá mikinn stuðning.
Flautað verður til leiks klukkan 12:30 á City Ground, heimavelli Nottingham Forest. Völlurinn tekur rúmlega 30.000 manns í sæti og er ljóst að enska liðið mun fá mikinn stuðning.
Snæbjört Pálsdóttir, fréttamaður Fótbolta.net, er stödd í Englandi og spurði Þorstein Halldórsson landsliðsþjálfara út í hvernig það yrði fyrir liðið að spila fyrir fullum City Ground.
„Við þurfum að njóta þess að spila fyrir framan 30.000 manns, ekki láta það hræða sig, heldur taka orkuna frá áhorfendum og nota hana. Njóta mómentsins að vera að spila svona stóra leiki. Þetta á að hjálpa manni, á að hvetja mann áfram.“
Athugasemdir



