Man City nálægt því að krækja í Anderson - Liverpool vill Diomande til að fylla skarð Salah
   fös 06. mars 2026 08:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Vitinha orðaður við Real Madrid - „Heimskulegt að yfirgefa PSG"
Mynd: EPA
Vitinha, miðjumaður PSG, er orðaður við Real Madrid en hann er ekki á þeim buxunum að yfirgefa PSG.

Vitinha hefur verið einn besti miðjumaður heims undanfarin ár og spænskir fjölmiðlar hafa fullyrt að hann sé með heiðurssamkomulag við PSG um að hann megi yfirgefa félagið í sumar.

Hann batt hins vegar enda á allar sögusagnir í viðtali við portúgölsku sjónvarpsstöðina Canal 11.

„Það yrði heimskulegt að yfirgefa PSG. Ég tel að það sé ekki best fyrir mig að fara til Madrídar núna. Mér líður mjög vel hjá PSG. Við erum með stórkostlegan hóp og frábæran stjóra í Luis Enrique," sagði Vitinha.
Athugasemdir
banner
banner