Wirtz á bekknum
Wolves og Liverpool eigast við í enska bikarnum í kvöld og hafa byrjunarliðin verið staðfest. Þetta er í annað sinn sem liðin eigast við á nokkrum dögum eftir óvæntan sigur Wolves í úrvalsdeildinni í miðri viku.
Úlfarnir gera sex breytingar á byrjunarliðinu sínu þar sem ýmsir lykilmenn eru hvíldir fyrir komandi átök í ensku úrvalsdeildinni. Þar þurfa Úlfarnir á kraftaverki að halda til að forðast fall, en Rob Edwards þjálfari hefur trú á sínum mönnum.
Arne Slot þjálfari Liverpool gerir fjórar breytingar frá tapinu óvænta, þar sem Hugo Ekitike sest á bekkinn ásamt Jeremie Frimpong, Ibrahima Konaté og Milos Kerkez.
Hinn 17 ára gamli Rio Ngumoha fær tækifæri í fremstu víglínu og þá koma Joe Gomez, Andy Robertson og Curtis Jones einnig inn í byrjunarliðið. Slot vill hvíla einhverja leikmenn fyrir næstu leiki gegn Galatasaray og Tottenham.
Wolves: Johnstone, Tchatchoua, Mosquera, S.Bueno, Toti, H.Bueno, J.Gomes, A.Gomes, Bellegarde, Mane, Arokodare
Varamenn: Bentley, Doherty, Wolfe, Armstrong, Hwang, Lima, R.Gomes, Krejci, Edozie.
Liverpool: Alisson, Gomez, Van Dijk, Szoboszlai, Mac Allister, Salah, Jones, Gakpo, Robertson, Gravenberch, Ngumoha.
Varamenn: Mamardashvili, Konate, Kerkez, Wirtz, Chiesa, Ekitike, Frimpong, Nyoni, Morrison.
Athugasemdir



