Stórlið á eftir Igor Thiago - Andre Onana til sölu - Endrick ekki til sölu - Mörg lið á eftir framherja Brentford
banner
   lau 14. febrúar 2026 12:50
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Sjáðu agalegt klúður Delap - „Hvað er hann að gera?"
Mynd: EPA
Chelsea er komið áfram í 16-liða úrslit enska bikarsins eftir öruggan 4-0 sigur á Hull í gær.

Liam Delap komst ekki á blað en hann hefði svo sannarlega átt að gera það eftir slæm mistök hjá Dillon Phillips, markverði Hull. Hann ætlaði að hreinsa frá en Delap komst í boltann sem hafnaði í slánni. Delap náði boltanum aftur og gat skorað á opið markið en hann hikaði og Phillips varði frá honum.

„Guð minn góður, hvað er Delap að gera? Það er eins og hann sé að hugsa: 'Ég hef allan tímann í heiminum', Hann labbar um og tekur sinn tíma. Eftir hverju ertu að bíða," sagði markahrókinn Alan Shearer, sérfræðingur hjá BBC.

„Liam Delap hefur ekki átt góðar mínútur. Hann hefur gefið boltann tvisvar frá sér og klúðrað dauðafæri. Delap hefur verið slakur og hefur fengið tækifæri. Hann virðist vera mjög latur."

„Ég sver við líf mitt að ég hljóp næstum því út af vellinum. Ég hélt að boltinn hafði farið inn og svo beið ég eftir því að dómarinn flautaði. Þetta var kjánalegt af mér," sagði Delap eftir leikinn.


Athugasemdir
banner
banner