Man City nálægt því að krækja í Anderson - Liverpool vill Diomande til að fylla skarð Salah
   lau 14. febrúar 2026 11:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Tottenham hafnaði fyrirspurnum frá Chelsea og Aston Villa
Mynd: EPA
Tottenham hafnaði fyrirspurnum margra félaga um sænska miðjumanninn Lukas Bergvall í janúar.

Bergvall var í lykilhlutverki á sínu fyrsta tímabili með Tottenham undir stjórn Ange Postecoglou og var leikmaður ársins hjá félaginu eftir að hafa hjálpað liðinu að vinna Evrópudeildina.

Hann var hins vegar í minna hlutverki undir stjórn Thomas Frank og spilaði mikið á kantinum frekar en miðsvæðis þar sem honum líður best.

Aðstæður hans vöktu athygli félaga á Englandi og víðar, þar á meðal Chelsea og Aston Villa sem hafa lengi horft til þessa tvítuga leikmanns.

Fyrirspurn Villa kom í kjölfar þess að Tottenham hafði betur gegn þeim í baráttunni um að fá Conor Gallagher til liðs við sig og fyrirspurn Chelsea komu um það leyti sem þeir voru einnig að meta kaup á Douglas Luiz, sem að lokum gekk til liðs við Villa.

Bergvall er sem stendur á meiðslalistanum eftir að hafa meiðst á ökkla gegn Dortmund í síðasta mánuði.
Athugasemdir
banner
banner