Gordon samþykkir að ganga í raðir Bayern - Chelsea og Man Utd vilja liðsfélaga Orra - Greenwood áfram hjá Marseille
   fim 14. maí 2026 15:13
Brynjar Ingi Erluson
„Ótrúlega neyðarlegt fyrir alla aðila“
Mynd: EPA
Unai Emery, stjóri Aston Villla, segir lánssamning Harvey Elliott til félagsins hafa verið sóun fyrir alla aðila sem komu að félagaskiptunum.

Elliott, sem er 21 árs gamall, kom á láni frá Liverpool síðasta sumar en aðeins spilað tíu leiki í öllum keppnum, þar af fjóra í deildinni.

Liverpool setti 35 milljóna punda kaupskyldu í lánssamninginn sem hefði aðeins virkjast hefði Elliott spilað tíu deildarleiki á tímabilinu.

Þetta ákvæði varð til þess að hann spilaði færri leiki á tímabilinu þar sem Villa hafði greinilega engan áhuga á að gera skiptin varanleg.

Hann mun því snúa aftur til Liverpool þegar lánssamningnum lýkur.

„Að útskýra ástæðuna fyrir þessari ákvörðun er mjög erfitt eða mjög auðvelt, en þetta er ekki augnablikið til þess. Ég bið Harvey Elliott daglega afsökunar í huga mínum. Við höfum okkar ábyrgð og Liverpool er með sína. Þetta ástand er ótrúlega neyðarlegt fyrir alla aðila. Ég er miður mín fyrir hönd drengsins.“

„Tímabilið hefur verið mjög erfitt,“
sagði Emery enn fremur.
Slapp
banner
banner