Elías Rafn Ólafsson og Viktor Bjarki Daðason byrja báðir er Midtjylland og FCK eigast við í úrslitaleik danska bikarsins klukkan 15:00 í dag.
Elías Rafn hefur verið með bestu markvörðum dönsku úrvalsdeildarinnar síðustu ár. Hann og félagar hans í Midtjylland töpuðu deildartitlinum á dögunum og gætu fengið smá sárabót með því að vinna bikarinn í dag.
Tímabilið hefur einnig verið afleitt hjá FCK sem endaði í Evrópuriðli deildarinnar. Viktor Bjarki hefur verið einn af ljósu punktunum í liði FCK, en framherjinn hefur verið að raða inn mörkum á tímabilinu.
Það gerir hann að yngsta leikmanni FCK til að byrja bikarúrslitaleik, aðeins 17 ára og 318 daga gamall.
Rúnar Alex Rúnarsson er á bekknum hjá FCK, en leikurinn er spilaður á Parken, heimavelli FCK.
Byrjunarlið FCK: Kotarski (M), Gabriel, Elyounoussi, Larsson, Lopez, Buta, Suzuki, Madsen, Zanka, Delaney, Daðason.
Byrjunarlið Midtjylland: Ólafsson (M) Han-Beom Lee, Martin Erlic, Mads Bech Sörensen, Dario Osorio, Pedro Bravo, Danil Castillo, Philip Billing, Viktor Bak, Aral Simsir, Gue-Sung Cho.


