Harpa Þorsteinsdóttir skoraði þrjú mörk í 6-0 sigri Stjörnunnar á FH í Pepsi-deild kvenna í kvöld. Markaveisla hennar heldur því áfram í sumar og sigurganga Stjörnunnar ætlar engan endi að taka.
Harpa var ánægð með spilamennsku Stjörnunnar frá byrjun leiks en hefði viljað halda úti sama tempó-i allan leikinn en það fjaraði heldur undan leik liðsins þegar líða fór á seinni hálfleikinn.
Harpa var ánægð með spilamennsku Stjörnunnar frá byrjun leiks en hefði viljað halda úti sama tempó-i allan leikinn en það fjaraði heldur undan leik liðsins þegar líða fór á seinni hálfleikinn.
,,Það er auðvitað enginn leikur auðveldur. Maður þarf alltaf að mæta með hausinn í lagi en þetta var nokkuð sannfærandi sigur. Við yfirspiluðum þær í fyrri hálfleik og áttum virkilega góðan leik. Við byrjuðum vel, betur en við höfum verið að gera. Seinni hálfleikurinn var líklega drepleiðinlegur á að horfa," sagði Harpa sem skoraði þrjú mörk í kvöld, hennar fjórða þrenna í sumar. Eitt marka hennar var glæsilegra en hin, þegar hún tók við fyrirgjöf með brjóstkassanum, og snéri varnarmann FH af sér og stýrði boltanum í markið.
,,Ég hef nú ekkert verið að æfa þetta eitthvað sérstaklega. Ég held að ég sé þekkt fyrir að nota rassinn á mér til að snúa af mér leikmenn. Ætli þetta hafi nokkuð komið einhverjum á óvart," sagði Harpa sem leikur með íslenska landsliðinu í næstu viku, mikilvægan leik gegn Danmörku á Laugardalsvelli. Hún var strax byrjuð að undirbúa sig fyrir þann leik með því að fá sér einn kleinuhring eftir leik.
Viðtalið í heild sinni er hægt að sjá í sjónvarpinu hér að ofan.























