Liverpool vill Conceicao - City að vinna kapphlaupið um Anderson - Ýmsir orðaðir við Man Utd
Álitið - Hverjir verða meistarar og hver verður bestur?
Óskar Hrafn hefur ekki tíma fyrir gæðastjórann
Aron Einar: Það hefur aldrei vantað upp á hjá honum
Arnar vonsvikinn: Rosalega mikill klaufagangur
Gylfi: Jákvætt að þetta gerist ekki í undankeppni
Ísak Bergmann: Langt síðan við höfum farið ósigraðir úr glugga
Jón Dagur: Verður eins og Covid leikur
Ellefu dagar í Bestu - Gæðastjórinn útskýrir xF
Steini: Hún er á mun betri stað en fyrir hálfu ári
Davíð Örvar: Við gefum öllum liðum leik
Maggi: Hann átti frábæran leik í dag
41 árs Birkir Már: Vonandi í síðasta skipti sem ég næ ekki 90 mínútum
Valdimar Þór: Skil dómarann að gefa mér gult
Daniel Badu: Þessi leikur sýndi okkur að við eigum enn eitthvað í land
Sölvi Geir um óvænta innkomu Sveins Margeirs: Þetta er okkar leikmaður og við pössum upp á þá
„Þurfum að læra sem lið að loka þessum leikjum"
Mikael Egill svekktur: Hann hló og sagði ekki séns
Arnar: Leið eins og við værum að spila á móti liði frá 1980
Orri Steinn þakklátur - „Maður tekur þessu ekki sem sjálfsögðum hlut"
Jasmín Erla: Það er galið að maður sé að spila í þessu
   mið 15. júní 2016 22:33
Daníel Geir Moritz
Ágúst Gylfason: Okkar tilvera að vera í toppbaráttu
Ágúst var í bleiku peysunni að vanda
Ágúst var í bleiku peysunni að vanda
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Við erum að fá gríðarlega sterkt lið hérna á heimavöll og þeir setja á okkur mark, komast í 1-0. Það er mjög erfitt að snúa blaðinu við en það gerðum við í dag,“ sagði Ágúst Gylfason eftir 3-1 sigur sinna manna á móti KR.

Lestu um leikinn: Fjölnir 3 -  1 KR

Martin Lund Pedersen og Guðmundur Karl Guðmundsson hafa oft leikið betur en í kvöld og fannst Ágústi KR byrja betur. „KR-ingar voru yfir í báráttunni fannst mér. Þeir komu sterkir hérna til leiks og settu mark á okkur. Við þurftum að gera eitthvað í hálfleiknum klárlega til að rífa aðeins menn upp og vera tilbúnir í baráttuna. Og við gerðum það og mér fannst seinni hálfleikurinn allt annar.“

Með sigrinum komst Fjölnir á toppinn og var Ágúst ánægður með það. „Við erum kannski að sjá það núna að það er okkar tilvera að vera í toppbaráttunni og við erum í góðu sæti núna og það er ágætis frí þannig að við allavega njótum þess á meðan það er.“

Leiktíminn hafði verið svolítið gagnrýndur enda fáir Íslendingar með hugann við Pepsi deildina sem stendur. „Það eru 627 á vellinum, ef þessi leiktími hefði ekki verið hefði ég búist við 1500 manns. En hvað með það. Við fengum þrjú stig í dag og það er það sem skipti mestu máli.“

Slapp
banner
banner