Man Utd íhugar að selja Ugarte - Liverpool vill leikmann í skiptum fyrir Salah - Vini Jr til Englands?
Álitið - Hvaða lið verður spútnikliðið?
Jökull: Menn klára páskaeggin í kvöld og svo erum við klárir
Álitið - Hvaða lið veldur mestu vonbrigðum?
Hallgrímur Mar eftir að hafa byrjað á bekknum: „Hvað heldur þú?“
KA menn klöppuðu hreindýrum fyrir 0-5 sigurinn
Kristófer Ingi: Ekkert heyrt um samning og fókusa á að spila
Todor Hristov eftir 0-5 tap: „Aðeins dýrara lið en okkar“
Linta svekktur: Ánægður með spilamennskuna
Gylfi fékk högg og bólgnaði - „Það þarf bara að skoða það“
Alex Freyr: Draugar síðustu leikja sem koma
„Of margir sem eru spurningamerki sem er ekki gott þegar mótið er að hefjast“
Venni eftir sigur í Eyjum: Er alveg í skýjunum
Elías Már um samkeppnina: Erum tveir ólíkir framherjar og styðjum við bakið á hvor öðrum
Óli Skúla um danskan framherja: Þú ert þá að segja mér fréttir
Siggi Höskulds: Það er fokking óþolandi
„Ákvað að skjóta í markmanninn og það virkaði"
Þrennt sem stóð upp úr hjá Jóa Kalla
Álitið: Hver verður stoðsendingahæstur?
Bestur í Mjólkurbikarnum - „Klúbbur sem á ekkert að vera í þessari deild“
Tap í uppbótartíma en Konni er stoltur
   fim 16. janúar 2014 23:43
Elvar Geir Magnússon
Óli Þórðar: Stefnum á að vinna deildina
Ólafur Þórðarson ætlar að ná markmiðum formanns Víkings og gera liðið að Íslandsmeisturum 2014.
Ólafur Þórðarson ætlar að ná markmiðum formanns Víkings og gera liðið að Íslandsmeisturum 2014.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
,,Þrjú stig og fjögur mörk í fyrsta leik, og það er bara miður janúar, við erum bara sæmilega sáttir með það," sagði Ólafur Þórðarson þjálfari Víkings eftir 4-1 sigur á Þrótti í Reykjavíkurmótinu í kvöld.

,,Hópurinn er að styrkjast. Það vantaði nokkra í dag og svo erum við að vinna í að styrkja hópinn frekar. Það vantar á miðjuna og framar á vellinum," sagði Ólafur en Pape Mamadou Faye var ekki með í dag enda nýlega kominn úr aðgerð.

,,Við erum að vona að við getum farið að nota hann í mars en það kemur í ljós. Hann var í erfiðri mjaðmaaðgerð og hann þarf að vera skynsamur ef það á að takast. Svo vantar Viktor Jónsson líka og Aron Elís. Það vantaði nokkra spræka stráka í liðið."

Ólafur segist ætla að styrkja liðið frekar og ljóst að ekki er eftir miklu að sækjast hér heima. Er hann að horfa út?

,,Jájá, það er bara úti. Allar styrkingar innanlands eru löngu farnar í einhver önnur lið. Það var umtalað að við þyrftum að bæta við fjórum eða fimm mönnum í byrjunarliðið til að halda okkur uppi í úrvalsdeild. Það er bara þannig og það hefur sýnt sig á síðustu árum að ansi mörg af þessum liðum sem hafa komið upp hafa farið beint niður aftur. Það er einfaldlega því þau hafa ekki verið nógu sterk."

,,Við stefnum á að stabilísera þennan klúbb í efstu deild aftur," sagði Ólafur en Björn Einarsson formaður Víkings tilkynnti í áramótakveðju í lok ársins 2010 að stefnt væri að því að Víkingur yrði besta félag landsins árið 2014. Er þá ekki stefnt að titlinum?

,,Jújú, og þrátt fyrir skemmtileg markmið formannsins setur maður sér alltaf það markmið að vinna allt sem maður tekur þátt í. Við stefnum á að vinna deildina en hvort það tekst kemur í ljós í september."

Sjá einnig:
,,Víkingur verður besta knattspyrnulið Íslands eigi síðar en 2014''
Slapp
banner