Tveir leikmenn Bournemouth undir smásjá Man Utd - Bayern vill Gordon frá Newcastle - Villa sýnir Trafford áhuga
banner
   fim 16. apríl 2026 06:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Æfingaleikur: Magni lagði Selfoss á Tene
Mynd: Magni
Brynjar Bergsson skoraði mark Selfoss með skalla eftir horn.
Brynjar Bergsson skoraði mark Selfoss með skalla eftir horn.
Mynd: Selfoss
Magni 3 - 1 Selfoss
Mörk Magna: Tómas Örn Arnarsson, Viðar Már Hilmarsson og Ólafur Jóhann Steingrímsson.
Mark Selfoss: Brynjar Bergsson

Magni og Selfoss, sem munu spila í 2. deild í sumar, mættust í æfingaleik á Tenerife á þriðjudag. Það voru Grenvíkingar, Magmamenn, sem höfðu sigur úr býtum. Lokatölur urðu 3-1.

Selfyssingurinn Jón Daði Böðvarsson spilaði hálfleik í leiknum en hann er að snúa til baka eftir meiðsli en Viðar Örn Kjartansson tók ekki þátt í leiknum.

Magni fór upp úr 3. deildinni í fyrra en Selfoss féll úr Lengjudeildinni.



Veistu úrslit úr æfingaleikjum?
Ef þú hefur upplýsingar um úrslit æfingaleikja og markaskorara endilega sendu okkur þá tölvupóst á [email protected] eða settu úrslitin á Twitter og merktu #fotboltinet
Slapp
banner
banner