Liverpool hefur áhuga á Senesi, Gordon og Ndiaye - City fylgist með Read - Mourinho orðaður við Newcastle
banner
   fim 16. apríl 2026 11:41
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Arna Dís ólétt
Kvenaboltinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Arna Dís Arnþórsdóttir, leikmaður Stjörnunnar, er ólétt og verður ekki með liðinu á komandi tímabili.

Arna Dís og unnusti hennar, Gylfi Tryggvason, birtu færslu á samfélagsmiðlum í gær þar sem greint er frá því að þau eigi von á syni í ágúst.

Arna Dís (1997) hefur verið í stóru hlutverki hjá Stjörnunni frá því að hún kom frá FH fyrir tímabilið 2019. Hægri bakvörðurinn lék 21 leik í Bestu deildinni í fyrra. Hún hefur einnig leikið með Breiðabliki og KR. Hún á að baki 24 leiki fyrir yngri landsliðin og skoraði í þeim sex mörk.

Gylfi er þjálfari Grindavíkur/Njarðvíkur og kom liðinu upp úr Lengjudeildinni á síðasta tímabili. Hann tók við liðinu eftir tímabilið 2024.

„Gylfason væntanlegur í ágúst," skrifar Arna Dís við færsluna.
Slapp
banner
banner