Liverpool hefur áhuga á Senesi, Gordon og Ndiaye - City fylgist með Read - Mourinho orðaður við Newcastle
   fim 16. apríl 2026 11:00
Elvar Geir Magnússon
Hver verður næsti stjóri Real Madrid?
Alvaro Arbeloa.
Alvaro Arbeloa.
Mynd: EPA
Allt stefnir í titlalaust tímabil hjá Real Madrid eftir að liðið féll úr leik gegn Bayern München í Meistaradeildinni. Liðið er níu stigum á eftir Barcelona í La Liga.

Spænskir fjölmiðlar segja ljóst að Madrídarfélagið muni ekki halda Alvaro Arbeloa í stjórastólnum en hann tók við eftir að Xabi Alonso var rekinn fyrr á tímabilinu.

Jurgen Klopp, Zinedine Zidane, Didier Deschamps og Mauricio Pochettino eru sagðir á blaði hjá Florentino Perez, forseta Real Madrid.

Klopp er efstur á óskalistanum en þó er talið líklegast að Pochettino verði næsti stjóri liðsins.
Slapp
banner
banner