Liverpool hefur áhuga á Senesi, Gordon og Ndiaye - City fylgist með Read - Mourinho orðaður við Newcastle
banner
   fim 16. apríl 2026 15:15
Elvar Geir Magnússon
Manninger lést þegar bifreið hans varð fyrir lest
Alex Manninger, til hægri, með Lee Dixon.
Alex Manninger, til hægri, með Lee Dixon.
Mynd: EPA
Alex Manninger, fyrrum markvörður Arsenal, lést í umferðarslysi þegar bifreið hans varð fyrir lest rétt fyrir utan Salzburg í morgun.

Manninger var 48 ára en hann lék 64 leiki fyrir Arsenal milli 1997 og 2002.

Hann lék 33 landsleiki fyrir Austurríki og meðal félagsliða sem hann spilaði fyrir voru Red Bull Salzburg, Sienna, Juventus, Udinese og Augsburg.

Hjá Arsenal var Manninger varamarkvörður fyrir David Seaman en í mars 1998 var hann valinn leikmaður mánaðarins í ensku úrvalsdeildinni fyrir frammistöðu sína á meðan Seaman var meiddur.

Lögreglan í Salzburg segir að fyrstu viðbragðsaðilar hefðu notað hjartastuðtæki á Manninger, sem var einn í bílnum, eftir að hann var losaður úr bílnum en ekki var hægt að endurlífga hann.



Slapp
banner
banner
banner