Arsenal hefur áhuga á Fernandes - Man Utd fylgist með Hjulmand - Valverde vill vera áfram hjá Real Madrid en City fylgist með
Bestur í Mjólkurbikarnum - Kominn tími á bikarævintýri í Mosfellsbæ
Rúnar Páll: Við hefðum getað skorað fleiri mörk
Fékk rautt í hálfleik: Mér fannst ég ekki vera of aggressívur
Jói Kalli tekur ábyrgð: Eitt að tapa leik en annað á þennan hátt
Nenad eftir sigur á KA: Auðvitað okkar besti leikur
Haddi ósáttur: Nenntum ekki að leggja okkur fram
Heimir Guðjóns maður leiksins: Það er geggjaður matur þannig ég hlakka til
„Er með Þórshjarta þannig það er gaman að vinna KA"
Viktor ósáttur á bekknum: Fór í hálfgert blackout
Damir svekktur: Vorum tíu sekúndum frá þessu
Lárusi Orra létt: Okkur var heldur betur refsað í dag
Axel Óskar: Við erum miklu stærra lið samt
Nauðsynlegur sigur fyrir framtíð Jökuls? - „Ég er raunverulega ekki að pæla í því“
„Hann er uppalinn strákur sem hefur lagt mikið á sig til þess að ná langt"
Jóhann Árni: Tilfinningar brutust út
Davíð Smári pirraður: Vorum einhvern veginn ekki tilbúnir í fightið
Óskar Hrafn vanur því að detta úr bikar: Lífið heldur áfram
Gunnar Heiðar spenntur: Þetta er nýi núllpunkturinn
Aron Baldvin: Vissum að við myndum fá bestu útgáfuna af þeim
Ólafur Ingi: Lokuðum búðinni eftir rauða spjaldið
banner
   mið 06. maí 2026 22:32
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson
Einar Guðna: Markmaðurinn minn átti náttúrúlega að vera tilbúinn
Kvenaboltinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Ég þoli ekki að tapa, en þetta var ekki nógu góður leikur hjá okkur og Breiðablik var betra liðið í dag og átti sigurinn skilið" sagði Einar Guðnason, þjálfari Víkings eftir tap 2-4 tap á heimavelli gegn Breiðabliki.

Blikar komust yfir snemma leiks með marki úr aukaspyrnu. „Ég sá ekki aðdragandann. Við eigum ekki að fá á okkur mark úr aukaspyrnu þarna, þetta fer í gegnum vegginn sýnist mér og markmanninn líka, sem var ekki tilbúinn, og hún átti náttúrulega að vera tilbúin, það er bara þannig."

Einar var ekki ánægður með frammistöðuna í fyrri hálfleik.


Lestu um leikinn: Víkingur R. 2 -  4 Breiðablik

„Þær fengu fullt af færum í fyrri hálfleik Blikarnir, en við vorum samt að ná að leysa pressuna þeirra af og til, við áttum þrjú fjögur upphlaup. Við vorum að velja mjög vitlaust þessa síðustu sendingu. En ég get svo sem ekki kvartað að vera eitt núll undir í hálfleik."

Einar var ósáttur hvernig Breiðablik skoruðu síðustu tvö mörkin sín.

„Við svörum ágætlega, þegar við erum komnir í vonlausa stöðu. En síðustu tvö mörkin sem við fáum á okkur eru ekki boðleg sko. Þau eru alls ekki nógu góð og við verðum að gera betur ef við ætlum að vinna leiki í sumar."

Fullt viðtal í spilaranum fyrir ofan


Slapp
banner
banner
banner
banner