Albert Guðmundsson og félagar hans í Fiorentina eru úr leik í Sambandsdeild Evrópu þrátt fyrir 2-1 sigur gegn Crystal Palace í 8-liða úrslitum keppninnar í Flórens í kvöld. Íslenski landsliðsmaðurinn skoraði fyrra mark Fiorentina í leiknum.
Fiorentina þurfti á kraftaverk að halda til að komast áfram eftir að hafa tapað fyrri leiknum 3-0 í Lundúnum.
Palace gerði út um þann möguleika er Ismaila Sarr kom gestunum yfir á 17. mínútu leiksins en vonarneistinn kviknaði þrettán mínútum síðar er heimamenn fengu vítaspyrnu sem Albert stýrði örugglega í vinstra hornið.
Frakkinn Cher Ndour kom inn af bekknum í síðari hálfleik og kom Fiorentina í forystu sjö mínútum síðar með glæsimarki af löngu færi.
Albert fór af velli þegar stundarfjórðungur var eftir en Fiorentina komst ekki nær Palace sem flaug nokkuð örugglega áfram í undanúrslitin.
Albert skilaði flottri frammistöðu í Sambandsdeildinni þetta tímabil með fjögur mörk og tvær stoðsendingar í tíu leikjum.
Gríska liðið AEK var grátlega nálægt því að knýja fram framlengingu gegn Rayo Vallecano.
Rayo vann 3-0 sigur á Spáni en það var allt öðruvísi leikur í Grikklandi þar sem AEK. Angólamaðurinn Zini skoraði á 23. mínútu og gerði Razvan Marin annað markið úr vítaspyrnu áður en Zini gerði þriðja mark AEK snemma í síðari hálfleiknum.
Allt jafnt í einvíginu á þeim tímapunkti en þegar hálftími var eftir skoraði Isi Palazon markið sem fleytti Rayo áfram í undanúrslitin.
Öll liðin í kvöldleikjunum áttu góðar endurkomur en sú besta kom hjá Strasbourg sem pakkaði Mainz saman, 4-0, og náði að snúa einvíginu sér í vil eftir tveggja marka tap í Þýskalandi í síðustu viku.
Sebastian Nanasi og Abdoul Ouattara komu Strasbourg í 2-0 í fyrri hálfleik og gat Emmanuel Emegha komið Frökkunum yfir í einvíginu eftir að Dominik Kohr braut af sér í teignum.
Daniel Batz, markvörður Mainz, sá hins vegar við Emegha sem hafði komið inn á sem varamaður aðeins nokkrum mínútum áður.
Það sló ekki heimamenn út af laginu sem skoruðu tvö mörk til viðbótar áður en flautað var til leiksloka. Julio Enciso skoraði á 69. mínútu og bætti síðan Emegha upp fyrir vítaspyrnuklúður sitt með marki fimmtán mínútum fyrir lok venjulegs leiktíma.
Undanúrslitin eru því klár. Crystal Palace mætir Shakhtar Donetsk á meðan Strasbourg spilar við Rayo Vallecano. Fyrri leikirnir fara fram 30. apríl en seinni leikirnir 7. maí.
Úrslit og markaskorarar:
Fiorentina 2 - 1 Crystal Palace (2-4, samanlagt)
0-1 Ismaila Sarr ('17 )
1-1 Albert Gudmundsson ('30 , víti)
2-1 Cher Ndour ('53 )
AEK 3 - 1 Rayo Vallecano (3-4, samanlagt)
1-0 Zini ('13 )
2-0 Razvan Marin ('36 , víti)
3-0 Zini ('51 )
3-1 Isi Palazon ('60 )
Strasbourg 4 - 0 Mainz (4-2, samanlagt)
1-0 Sebastian Nanasi ('26 )
2-0 Abdoul Ouattara ('35 )
2-0 Emanuel Emegha ('66 , Misnotað víti)
3-0 Julio Enciso ('69 )
4-0 Emanuel Emegha ('74 )




