Arsenal lagði fram tilboð í Gyökeres - Pogba að fara til Mónakó - Newcastle vill Pedro
banner
   lau 14. júní 2025 17:00
Brynjar Ingi Erluson
Tottenham og Bayern færast nær samkomulagi
Mynd: EPA
Tottenham og Bayern München eru að ganga frá samkomulagi um kaup og sölu á franska sóknarmanninum Mathys Tel. Bild greinir frá.

Þessi tvítugi framherji kom til Tottenham á láni frá Bayern í janúarglugganum og greiddi enska félagið um 8,5 milljónir punda í lánsfé.

Tel skoraði aðeins tvö mörk með Tottenham í deildinni, en var í hópnum sem fór alla leið í Evrópudeildinni og tryggði Meistaradeildarsæti fyrir næsta tímabil.

Bild segir að hann verði líklega áfram hjá Tottenham. Félagið er að færast nær samkomulagi við Bayern um kaup á honum, en það mun greiða tæpar 30 milljónir punda til að gera skiptin varanleg.

Bayern mun þurfa þennan pening til að fjármagna kaup á fleiri mönnum í sóknarlínuna eftir brotthvarf Thomas Müller og Leroy Sane.
Athugasemdir
banner