Arsenal lagði fram tilboð í Gyökeres - Pogba að fara til Mónakó - Newcastle vill Pedro
   lau 14. júní 2025 16:54
Brynjar Ingi Erluson
2. deild: Bjöggi Stef bjargaði stigi í uppbótartíma - Vogamenn aftur á toppinn
Bjöggi Stef sótti stig fyrir Gróttu
Bjöggi Stef sótti stig fyrir Gróttu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Vogamenn eru komnir aftur á toppinn
Vogamenn eru komnir aftur á toppinn
Mynd: Helgi Þór Gunnarsson
Höttur/Huginn náði í fyrsta deildarsigurinn
Höttur/Huginn náði í fyrsta deildarsigurinn
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Þróttur V. endurheimti toppsætið í 2. deild karla í dag með 2-0 sigri á Haukum á Vogaídýfu-vellinum í dag. Grótta og Ægir gerðu þá ótrúlegt 3-3 jafntefli á Vivaldi-vellinum, en það var Björgvin Stefánsson sem bjargaði stigi fyrir Seltirninga á lokasekúndum leiksins.

Ægir var á toppnum fyrir umferðina og var á góðri leið með að halda því sæti.

Staðan var 3-1 þegar tuttugu mínútur voru eftir. Jordan Adeyemo hafði skorað tvö og Bjarki Rúnar Jónínuson eitt úr víti gegn einu marki Gróttu sem Kristófer Dan Þórðarson skoraði.

Rúmum tíu mínútum fyrir lok venjulegs leiktíma minnkaði Marciano Aziz muninn og þegar lítið var eftir gerði Björgvin Stefánsson jöfnunarmarkið sem var hans þriðja á þessu tímabili.

Ægismenn glutruðu niður unnum leik og eru komnir í annað sætið með 17 stig en Grótta er í sætinu fyrir neðan með 15 stig.

Grótta 3 - 3 Ægir
0-1 Jordan Adeyemo ('12 )
1-1 Kristófer Dan Þórðarson ('24 )
1-2 Jordan Adeyemo ('27 )
1-3 Bjarki Rúnar Jónínuson ('70 , Mark úr víti)
2-3 Marciano Aziz ('79 )
3-3 Björgvin Stefánsson ('90 )

Grótta Marvin Darri Steinarsson (m), Kristófer Melsted, Patrik Orri Pétursson, Valdimar Daði Sævarsson, Caden Robert McLagan, Björgvin Brimi Andrésson, Grímur Ingi Jakobsson, Marciano Aziz (90'), Dagur Bjarkason, Einar Tómas Sveinbjarnarson (65'), Kristófer Dan Þórðarson (83')
Varamenn Björgvin Stefánsson (83'), Hrannar Ingi Magnússon, Viktor Orri Guðmundsson (65'), Aron Bjarni Arnórsson, Benedikt Aron Albertsson, Daníel Agnar Ásgeirsson (90'), Alexander Arnarsson (m)

Ægir Andri Þór Grétarsson (m), Stefan Dabetic, Aron Fannar Hreinsson (58'), Atli Rafn Guðbjartsson, Jordan Adeyemo (90'), Dimitrije Cokic, Sigurður Óli Guðjónsson, Einar Breki Sverrisson, Benedikt Darri Gunnarsson, Baptiste Gateau, Bjarki Rúnar Jónínuson
Varamenn Ísak Aron Ómarsson, Jón Jökull Þráinsson, Bilal Kamal (58), Aron Daníel Arnalds (90), Ivan Rodrigo Moran Blanco, Ivaylo Yanachkov (m)

Höttur/Huginn vann sinn fyrsta leik á tímabilinu er liðið lagði Víking Ólafsvík. 2-1, á Fellavelli.

Þórhallur Ási Aðalsteinsson skoraði úr vítaspyrnu á 52. mínútu, en Kwame Quee jafnaði aðeins fjórum mínútum síðar. Það var síðan Stefán Ómar Magnússon sem tryggði heimamönnum fyrsta sigurinn í deildinni þegar stundarfjórðungur var til leiksloka.

Höttur/Huginn er áfram í neðsta sæti en nú með 5 stig á meðan Ólsarar eru með 9 stig í 6. sæti.

Höttur/Huginn 2 - 1 Víkingur Ó.
1-0 Þórhallur Ási Aðalsteinsson ('52 , Mark úr víti)
1-1 Kwame Quee ('56 )
2-1 Stefán Ómar Magnússon ('76 )

Höttur/Huginn Gerard Tomas Iborra (m), André Musa Solórzano Abed, Eyþór Magnússon, Genis Arrastraria Caballe, Danilo Milenkovic, Þórhallur Ási Aðalsteinsson (89'), Bjarki Fannar Helgason, Kristófer Páll Viðarsson (86'), Sæþór Ívan Viðarsson (65'), Kristján Jakob Ásgrímsson, Árni Veigar Árnason (65')
Varamenn Þór Albertsson (89'), Rafael Llop Caballe, Bjarki Nóel Brynjarsson (86'), Stefán Ómar Magnússon (65'), Ívar Logi Jóhannsson, Kristófer Máni Sigurðsson (65'), Brynjar Smári Ísleifsson (m)

Víkingur Ó. Jón Kristinn Elíasson (m), Ingvar Freyr Þorsteinsson, Gabriel Þór Þórðarson, Daði Kárason, Ivan Lopez Cristobal, Anel Crnac (83'), Luke Williams, Luis Romero Jorge, Björn Darri Ásmundsson (57'), Björn Henry Kristjánsson (83'), Kwame Quee
Varamenn Kristófer Áki Hlinason (57), Brynjar Óttar Jóhannsson, Haukur Smári Ragnarsson, Ellert Gauti Heiðarsson (83), Asmer Begic (83), Kristall Blær Barkarson (m)

Kári vann KFA, 3-2, í Akraneshöllinni, sem var þriðji sigur Kára á tímabilinu.

Heimamenn fengu blauta tusku í andlitið á 4. mínútu er Matheus Bissi setti boltann í netið, en Kári tókst að snúa taflinu við áður en hálfleikurinn var úti. Börkur Bernharð Sigmundsson jafnaði úr víti á 26. mínútu og bætti við öðru undir lok hálfleiksins.

Gestirnir jöfnuðu tæpum hálftíma fyrir leikslok, en Marinó Hilmar Ásgeirsson svaraði tólf mínútum síðar með sigurmarki og þar við sat.

Kári með 9 stig í 7. sæti en KFA dettur niður í 9. sæti með 8 stig.

Markaskorarar úr leiknum voru fengnir af Úrslit.net

Kári 3 - 2 KFA
0-1 Matheus Bissi ('4 )
1-1 Börkur Bernharð Sigmundsson ('26, víti )
2-1 Börkur Bernharð Sigmundsson ('40 )
2-2 Markaskorara vantar ('66 )
3-2 Marinó Hilmar Ásgeirsson ('78 )

Kári Kristján Hjörvar Sigurkarlsson (m), Sigurjón Logi Bergþórsson, Tómas Týr Tómasson, Gísli Fannar Ottesen, Mikael Hrafn Helgason, Birkir Hrafn Samúelsson, Máni Berg Ellertsson, Sveinn Svavar Hallgrímsson, Oskar Wasilewski, Finnbogi Laxdal Aðalgeirsson, Börkur Bernharð Sigmundsson
Varamenn Marinó Hilmar Ásgeirsson, Sigurður Hrannar Þorsteinsson, Hektor Bergmann Garðarsson, Benedikt Ísar Björgvinsson, Kristian Mar Marenarson, Matthías Daði Gunnarsson, Kasper Úlfarsson (m)

KFA Milan Jelovac (m), Unnar Ari Hansson, Matheus Bissi Da Silva, Geir Sigurbjörn Ómarsson, Arkadiusz Jan Grzelak, Marteinn Már Sverrisson, Þór Sigurjónsson, Javier Montserrat Munoz, Heiðar Snær Ragnarsson, Patrekur Aron Grétarsson, Hrafn Guðmundsson
Varamenn Eggert Gunnþór Jónsson, Imanol Vergara Gonzalez, Birkir Ingi Óskarsson, Adam Örn Guðmundsson, Arnar Bjarki Björgvinsson, Nenni Þór Guðmundsson, Danny El-Hage (m)

Þróttur V. er komið aftur á toppinn í deildinni eftir 2-0 sigur liðsins á Haukum.

Jón Veigar Kristjánsson skoraði á 3. mínútu og gerði Auðun Gauti Auðunsson út um leikinn skömmu fyrir leikslok.

Vogamenn með 18 stig á toppnum en Haukar í 4. sæti með 14 stig.

Þróttur V. 2 - 0 Haukar
1-0 Jón Veigar Kristjánsson ('3 )
2-0 Auðun Gauti Auðunsson ('86 )

Þróttur V. Jökull Blængsson (m), Ólafur Örn Eyjólfsson, Auðun Gauti Auðunsson, Hilmar Starri Hilmarsson, Jón Veigar Kristjánsson, Guðni Sigþórsson (90'), Jóhannes Karl Bárðarson, Eyþór Orri Ómarsson, Ásgeir Marteinsson (58') (75'), Rúnar Ingi Eysteinsson, Kostiantyn Pikul
Varamenn Hreinn Ingi Örnólfsson, Anton Breki Óskarsson (58'), Sigurður Agnar Br. Arnþórsson (90'), Almar Máni Þórisson, Jón Kristinn Ingason, Birgir Halldórsson (75'), Rökkvi Rafn Agnesarson (m)

Haukar Þorsteinn Ómar Ágústsson (m), Ísak Jónsson, Eiríkur Örn Beck (83'), Máni Mar Steinbjörnsson, Daði Snær Ingason, Andri Steinn Ingvarsson (83'), Alexander Aron Tómasson, Daníel Smári Sigurðsson, Guðjón Pétur Lýðsson, Guðmundur Axel Hilmarsson, Magnús Ingi Halldórsson (46')
Varamenn Bjarki Viðar Björnsson (83), Tómas Atli Björgvinsson (83), Óliver Steinar Guðmundsson, Hallur Húni Þorsteinsson, Birkir Brynjarsson, Óliver Þorkelsson (46), Heiðar Máni Hermannsson (m)
2. deild karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Þróttur V. 8 6 0 2 13 - 6 +7 18
2.    Ægir 8 5 2 1 19 - 11 +8 17
3.    Grótta 8 4 3 1 15 - 10 +5 15
4.    Haukar 8 4 2 2 12 - 10 +2 14
5.    Dalvík/Reynir 8 4 1 3 10 - 6 +4 13
6.    Kormákur/Hvöt 8 4 0 4 9 - 14 -5 12
7.    Víkingur Ó. 8 2 3 3 13 - 11 +2 9
8.    Kári 8 3 0 5 10 - 14 -4 9
9.    KFA 8 2 2 4 17 - 15 +2 8
10.    Víðir 8 2 2 4 8 - 11 -3 8
11.    KFG 8 2 1 5 12 - 16 -4 7
12.    Höttur/Huginn 8 1 2 5 7 - 21 -14 5
Athugasemdir
banner