Eduardo Camavinga sá seinna gula spjaldið og í kjölfarið skoraði Bayern tvö mörk til að tryggja sig áfram
Hollenski þjálfarinn Ronald Koeman segir að ef hann væri í þjálfarastólnum hjá Real Madrid þá hefði hann frekar beint reiði sinni að franska miðjumanninum Eduardo Camavinga heldur en dómara leiksins, en Camavinga sá rauða spjaldið á mikikvægum tímapunkti í 4-3 tapi liðsins gegn Bayern München í Meistaradeildinni í gær.
Real Madrid er úr leik í Meistaradeildinni eftir samanlagt 6-4 tap í einvíginu sem var eitt það besta í keppninni á þessari leiktíð.
Á 86. mínútu leiksins var Real Madrid með 2-1 forystu og á leið í framlengingu, en Camavinga fékk klaufalegt seinna gula fyrir leiktöf með því að brjóta af sér og taka upp boltann.
Arbeloa sagði dómarann hafa eyðilagt leikinn með þessari ákvörðun, en í kjölfarið skoruðu þeir Luis Díaz og Michael Olise til að tryggja Bayern áfram.
Koeman segir að Arbeloa hefði frekar átt að beina reiði sinni að Camavinga.
„Ég hefði verið reiðari út í leikmanninn ef ég væri að þjálfa Real Madrid. Auðvitað líka út í dómarann því hann þarf að skilja flæði leiksins. Camavinga hefði samt bara átt að brjóta og láta boltann í friði og koma sér í stöðu. Hann setti þetta í hendur dómarans með því að taka upp boltann og það er eitthvað sem þú mátt ekki gera,“ sagði Koeman.



