Hermann Hauksson, fyrrum körfuknattleiksmaður og núverandi álitsgjafi í Körfuboltakvöldi á Stöð 2 Sport, var á meðal áhorfenda á leiknum gegn Ungverjalandi í kvöld.
Hermann var að vonum svektur í leikslok, líkt og þorri íslensku áhorfendanna, þegar Fótbolti.net hitti hann fyrir utan Velodrome leikvöllinn í Marseille.
Við spurðum hann um hans fyrstu tilfinningar eftir að sjá boltann fara inn í markið framhjá Hannesi Halldórssyni, markverði íslands.
Hermann var að vonum svektur í leikslok, líkt og þorri íslensku áhorfendanna, þegar Fótbolti.net hitti hann fyrir utan Velodrome leikvöllinn í Marseille.
Við spurðum hann um hans fyrstu tilfinningar eftir að sjá boltann fara inn í markið framhjá Hannesi Halldórssyni, markverði íslands.
"Tilfinningin var eiginlega bara hálf ömurleg. Ég hélt við myndum ná að halda þessu en við lágum bara í vörn þannig að maður bjóst alveg eins við þessu."
"Mér fannst við eiga meira inni. Ég hefði viljað sjá aðeins sókndjarfari leik og beita skyndisóknunum meira. En við lágum bara aftarlega og fáum þessvegna þetta skítamark á okkur" sagði hundfúll Hermann.
Gylfi Sigurðsson fékk dauðafæri til að vinna leikinn fyrir Ísland en aukaspyrna hans undir lok leiksins fór í varnarveginn.
"Ég hélt allan tímann að þetta væri inni. Svo þegar Eiður fékk aukaskot á eftir aukaspyrnunni, það hefði verið frábært ef hann hefði sett þetta inn en það tókst ekki."
"En það fyndna við þetta er auðvitað að við skulum vera svekkt með 1-1 jafntefli og það sýnir bara hvar við erum stödd. Ég er bullandi bjartsýnn á að þetta lið fari upp úr þessum riðli, Liðið hefur alla burði til þess. Smá meiri sóknarleikur og þá getum við alveg tekið Austurríki." bætti Hermann bjartsýnn við.
Stuðningsmenn Ungverja voru fjölmennir á vellinum í kvöld og létu öllum illum látum, kveiktu meðal annars á blysi.
"Það voru svaka læti í þeim, þeir sýndu andstæðingnum vanvirðingu eins og mörg svona lið gera. En svona er bara boltinn." sagði Hermann að lokum.






















