Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   þri 19. maí 2026 08:30
Ívan Guðjón Baldursson
Arteta: Ég verð stærsti stuðningsmaður í sögu Bournemouth
Mynd: EPA
Mikel Arteta er spenntur fyrir mikilvægu einvígi Bournemouth gegn Manchester City sem fer fram í kvöld. Þessi leikur getur ráðið úrslitum bæði í titilbaráttunni og Meistaradeildarbaráttunni.

Man City þarf sigur til að halda í við Arsenal í titilbaráttunni, allt annað myndi tryggja afar langþráðan titil Arsenal.

Bournemouth þarf að sama skapi sigur til að eiga möguleika á Meistaradeildarsæti.

„Ég verð stærsti stuðningsmaður í sögu Bournemouth," sagði Arteta eftir 1-0 sigur Arsenal gegn Burnley í gærkvöldi. „Við höldum allir með Bournemouth á morgun útaf því að við vitum hvað jákvæð úrslit hjá þeim myndu þýða fyrir okkur."

Þetta verður síðasti heimaleikur Andoni Iraola við stjórnvölinn hjá Bournemouth en liðið er ósigrað í síðustu sextán deildarleikjum í röð. Bournemouth tapaði síðast gegn Arsenal í byrjun árs. Arteta var spurður hvaða ráð hann myndi gefa samlanda sínum fyrir leikinn gegn City.

„Það sem hann hefur gert með þetta fótboltalið er ótrúlegt. Ég þarf ekki að gefa honum nein ráð. Ég býst við að þetta verði hörkuleikur, sérstaklega miðað við hvernig Burnley spilaði gegn okkur í kvöld. Þeir sýndu svo mikla baráttu og gerðu okkur mjög erfitt fyrir. Þið getið rétt ímyndað ykkur hvernig Bournemouth verður. Hvernig sem þetta fer þá verður þetta ekki auðveldur leikur fyrir neinn."

Arteta var að lokum spurður hvernig hann höndlar stressið sem fylgir því að vera að berjast um titla með Arsenal.

„Ég veit það ekki. Miðað við hvað ég er með þykkt hár þá bjóst ég við að ég myndi aldrei missa það, en ég held að þetta starf muni virkilega reyna á þá kenningu."

   18.05.2026 22:37
Arteta: Bíðum spenntir eftir leiknum á morgun

Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 38 26 7 5 71 27 +44 85
2 Man City 38 23 9 6 77 35 +42 78
3 Man Utd 38 20 11 7 69 50 +19 71
4 Aston Villa 38 19 8 11 56 49 +7 65
5 Liverpool 38 17 9 12 63 53 +10 60
6 Bournemouth 38 13 18 7 58 54 +4 57
7 Sunderland 38 14 12 12 42 48 -6 54
8 Brighton 38 14 11 13 52 46 +6 53
9 Brentford 38 14 11 13 55 52 +3 53
10 Chelsea 38 14 10 14 58 52 +6 52
11 Fulham 38 15 7 16 47 51 -4 52
12 Newcastle 38 14 7 17 53 55 -2 49
13 Everton 38 13 10 15 47 50 -3 49
14 Leeds 38 11 14 13 49 56 -7 47
15 Crystal Palace 38 11 12 15 41 51 -10 45
16 Nott. Forest 38 11 11 16 48 51 -3 44
17 Tottenham 38 10 11 17 48 57 -9 41
18 West Ham 38 10 9 19 46 65 -19 39
19 Burnley 38 4 10 24 38 75 -37 22
20 Wolves 38 3 11 24 27 68 -41 20
Slapp
banner