Markvörðurinn Tom Heaton er búinn að samþykkja eins árs samning við Manchester United.
Heaton er þriðji markvörður félagsins og hefur ekki spilað keppnisleik fyrir Man Utd í meira en þrjú ár. Hann er 40 ára gamall og fær nýjan samning vegna jákvæðra áhrifa sinna á æfingasvæðinu.
Heaton er uppalinn hjá Wrexham í Wales en flutti til Manchester 16 ára gamall til að fara í akademíu félagsins. Hann lék ekki keppnisleik fyrir liðið og skipti yfir til Cardiff City og Bristol City áður en hann stoppaði við í Burnley í sex ár og komst meðal annars í enska landsliðið.
Hann var hjá Aston Villa í tvö ár eftir dvöl sína í Burnley og hélt svo aftur til Man Utd sumarið 2021, ellefu árum eftir að hafa farið frá félaginu.
Heaton hefur aðeins spilað þrjá keppnisleiki á síðustu fimm árum hjá United, án þess að fá mark á sig.
Hann hélt hreinu gegn Nottingham Forest og Charlton í deildabikarnum fyrir þremur árum, eftir að hafa komið inn af bekknum fyrir Dean Henderson í 1-1 jafntefli gegn Young Boys í Meistaradeildinni 2021.
23.01.2026 14:30
Í hlutverki utan vallar og fær annan samning hjá Man Utd




