Ólíklegt er að varnarmaðurinn Jurrien Timber verði klár fyrir úrslitaleik Arsenal gegn Paris St-Germain í Meistaradeildinni.
Timber er í kapphlaupi við tímann til að vera klár í leikinn þann 30. maí, og fyrir heimsmeistaramótið með hollenska landsliðinu.
Hann hefur verið fjarri góðu gamni frá því um miðjan mars vegna nárameiðsla. Hollenski hópurinn verður kynntur í næstu viku.

„Hann er byrjaður að æfa af meiri krafti til að sjá hvort hann geti verið með í úrslitaleiknum í Meistaradeildinni og í HM. Þetta lítur ekkert of bjart út sem stendur," segir Ronald Koeman, landsliðsþjálfari Hollands.
Það er þegar ljóst að miðvörðurinn Matthijs de Ligt verður ekki með Hollandi á HM og einnig Jerdy Schouten og Xavi Simons.