Ætlar að fá Kvaratskhelia til Real Madrid - Ngumoha ekki til sölu - Mourinho vill Bernardo Silva
Hákon Arnar: Vona að Messi spili
Gylfi um skilaréttsmálið: Meira en ánægður að hafa skipt
Aron Einar: Get staðfest að ég verð ekki áfram í Al-Gharafa
Sædís Rún: Á okkar degi getum við náð stigum af öllum liðum
Gagnrýnir nýju reglurnar harðlega - „Alveg skelfilegt ef ég á að vera hreinskilin“
Katla Tryggva fyrir Spánarleikinn: Það er alveg hægt að stríða þeim
Hödda langaði að fagna eins og Auðun gegn Haukum - „Allir á bekknum brjálaðir að hann hefði skotið"
Breki Þór: Gott í bankann
Elfar Árni: Það þýðir ekkert að fara að vorkenna sér
Badu: Við sýndum í dag að við erum með góðan hóp
Gunnar Már: Við munum ekki geta hvílt leikmenn
Viðar Örn: Ég hlakka mikið til að spila með honum í næstu leikjum
Óli Flóvents: Þetta mál er að baki
Venni: Þurfum að höndla það betur en síðast
Heimir Guðjóns: Þurfum að finna lausnir
Siggi Lár: Gaman að vera í Laugardalnum
Horfðu á Besta spjallið - Staða mála skoðuð í landsleikjahlénu
Pablo Punyed sáttur: Vona að ég sjálfur geti spilað minna og minna í sumar
Gaui Lýðs um uppganginn á Ásvöllum: Setjum stefnuna á að komast í efstu deild
Nemanja Pjevic: Þegar maður bíður eftir strætó koma þeir allt í einu þrír í einu
   mán 18. maí 2026 22:36
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson
Fannst ekki ganga nógu vel að koma mönnum niður á jörðina eftir leikinn gegn FH
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Já, mjög ánægður með sigurinn. Gríðarlega erfiður leikur, ÍR voru mjög góðir. Leikurinn var svolítið spilaður á þeirra forsendum, þeir náðu að ýta okkur svolítið út úr okkar leik. En við sýndum karakter og náðum að klára þetta. Sterkt að vinna á heimavelli" sagði Heimir Guðjónsson, þjálfari Fylkis eftir 2-1 sigur á heimavelli gegn ÍA í fjórðu umferð Lengjudeildarinnar.


Lestu um leikinn: Fylkir 2 -  1 ÍR

Ertu óánægður með frammistöðuna í dag?

„Við erum búnir að spila þétt, frammistaðan var ekki góð. Þetta er fjórði leikurinn sem við spilum á heimavelli, þá er þetta sísta frammistaðan. En í seinni hálfleik þá hélt skipulagið og við náðum að pota einum í lokin. Ég ætla langt frá því að segja að þetta hafi verið sanngjarnt, en við tökum sigurinn."

Heimir segir að leikmenn Fylkis áttu erfitt með að komast niður á jörðina eftir leikinn gegn FH.

„Já, ég meina auðvitað frábært að komast áfram í bikarnum. En við reyndum að gera allt sem í okkar valdi stóð til þess að koma mönnum niður á jörðina. Mér fannst það ekki heppnast nógu vel."

Gummi Tyrfings byrjaði í dag eftir langa fjarveru og langa setu á bekknum.

„Gummi er frábær fótboltamaður. Hann lenti í því að vera meiddur í byrjun móts, þetta er fyrsti leikurinn í byrjunarliðinu. Hann var búin að vera besti leikmaðurinn okkar í undirbúningstímabilinu. Benni meiddist á móti FH, þannig fínt fyrir Gumma að fá leik, svo bara höldum við áfram."

Fullt viðtal í spilaranum fyrir ofan


Slapp
banner
banner