Úrvalsdeildarfélögin Brighton, Chelsea og Brentford hafa öll áhuga á Said El Mala, 19 ára liðsfélaga Ísaks Bergmanns Jóhannessonar í FC Köln.
El Mala er kantmaður að upplagi og byrjaði tímabilið sem varaskeifa en endaði það sem byrjunarliðsmaður. Hann tók þátt í öllum deildarleikjum Köln á tímabilinu og kom með beinum hætti að 18 mörkum í 36 leikjum í öllum keppnum.
El Mala hefur verið orðaður við stórlið undanfarna mánuði þar sem Manchester United, Newcastle, FC Bayern og Borussia Dortmund hafa öll verið nefnd til sögunnar.
Táningurinn var lykilmaður í U19 landsliði Þýskalands og leikur í dag fyrir U21 landsliðið. Hann á í heildina 8 mörk í 23 landsleikjum en á eftir að taka skrefið upp í A-landsliðið.
Talið er að Köln vilji að minnsta kosti 50 til 60 milljónir evra til að selja El Mala, sem er með fjögur ár eftir af samningi. Þá vonast félagið eftir að El Mala verði valinn í landsliðshóp Þýskalands sem fer á HM í sumar, þá gæti verðmiðinn á honum rokið upp.


