FH-ingurinn Logi Hrafn Róbertsson (2004) var á skotskónum þegar Värnamo tók á móti Norrby í sænsku B-deildinni um helgina.
Hann skoraði annað mark liðsins í leiknum og kom heimamönnum í 2-1. Markið dugði þó ekki til því lokatölur urðu 2-2.
Markið var annað markið hans Loga fyrir félagið og var það af dýrari gerðinni. Varnarmaður Norrby skallaði boltann hátt upp í loftið, Logi kom á ferðinni og lúðraði boltanum að marki á lofti fyrir utan D-bogann á vítateig Norrby. Boltinn söng svo í netinu eins og sjá má í spilaranum hér að neðan.

Värnamo er í 12. sæti B-deildarinnar eftir að hafa tapað þremur leikjum í röð fyrir leikinn um helgina. Byrjunin hefur ekki verið frábær hjá liðinu sem ætlar sér hluti í efri hluta deildarinnar. Srdjan Tufegdzic er þjálfari liðsins. Næsti leikur er útileikur gegn Falkenberg á laugardag.