Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   þri 19. maí 2026 10:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Stjarnan spilar sex af fyrstu níu á heimavelli
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Framundan hjá Stjörnunni eru tveir heimaleikir í Bestu deildinni. Stjarnan tekur á móti Fram á föstudag í 8. umferð Bestu deildarinnar og í kjölfarið er leikur gegn Víkingi næsta þriðjudag. Sá leikur er færður þar sem bæði lið eru á leið í Evrópuleiki í júlí.

Eftir þann leik verður Stjarnan búin að spila sex heimaleiki í fyrstu níu leikjum sínum í deildinni.

Valur hefur einnig spilað marga heimaleiki í fyrstu umferðunum, Valsarar eru búnir með fimm heimaleiki en framundan eru tveir útileikir. Valur víxlaði á heimaleik við FH vegna þess að Kaplakrikavöllur var ekki tilbúinn.

Stjarnan spilar tvo heimaleiki í júní en á svo ekki heimaleik aftur fyrr en í ágúst. Ástæðan fyrir fjölda heimaleikja er m.a. sú að félagið víxlaði við ÍA á heimaleikjum þar sem völlurinn á Akranesi var ekki klár.

Í ofanálag hefur Stjarnan mætt bæði Selfossi og KR á heimavelli í bikarnum, en fer í Mosfellsbæ í 8-liða úrslitum.

Deildarleikir Stjörnunnar til þessa
KA 2 - 3 Stjarnan
Stjarnan 3 -2 FH
Víkingur 3 -2 Stjarnan
Stjarnan 2 - 4 Valur
Stjarnan 1 - 2 ÍA
Stjarnan 2 - 3 KR
Keflavík 1 - 1 Stjarnan
Stjarnan - Fram (föstudag)
Stjarnan - Víkingur (næsta þriðjudag)
Besta karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Víkingur R. 10 9 1 0 34 - 6 +28 28
2.    KR 10 8 1 1 38 - 23 +15 25
3.    Fram 9 6 2 1 25 - 16 +9 20
4.    Breiðablik 9 4 3 2 22 - 15 +7 15
5.    Valur 10 5 0 5 19 - 22 -3 15
6.    ÍA 9 3 3 3 12 - 16 -4 12
7.    Keflavík 9 3 2 4 12 - 18 -6 11
8.    KA 9 3 1 5 12 - 15 -3 10
9.    Stjarnan 10 3 1 6 18 - 22 -4 10
10.    Þór 9 2 0 7 7 - 23 -16 6
11.    ÍBV 9 1 2 6 14 - 23 -9 5
12.    FH 9 0 2 7 12 - 26 -14 2
Slapp
banner
banner