Man Utd og Chelsea hafa áhuga á Adeyemi - Real Madrid horfir til Gvardiol - Liverpool vill Dumfries
banner
   þri 19. maí 2026 15:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Framlengir við KR í meiðslunum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Arnar Freyr Ólafsson hefur framlengt samning sinn við KR og er hann nú samningsbundinn félaginu út tímabilið 2027.

Markvörðurinn glímir við meiðsli í hné þessa stundina og verður áfram næstu mánuðina eftir að hafa meiðst í fyrstu umferð Bestu deildarinnar.

Hann kom frá HK í sumarglugganum í fyrra og spilaði í tveimur leikjum í Bestu deildinni á síðasta tímabilinu. Komandi inn í tímabilið í ár var hann svo aðalmarkvörður liðsins eftir að hafa spilað vel í vetur.

Hann er fæddur árið 1993 og hefur spilað með Fjölni, Ægi, Leikni, HK og KR á sínum ferli.

„Það stendur náttúrulega engin markmaður í Evrópu jafnhátt og hann, hann er einstakur karakter. Með mikilli virðingu fyrir öllum leikmönnum sem ég hef þjálfað, þá er hann langduglegasti og sennilega opnasti einstaklingur sem ég hef þjálfað," sagði Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, um Arnar í viðtali eftir að markvörðurinn meiddist.


Slapp
banner
banner