Fotbolti.net
18.05.26 - 18:20
Ívan Guðjón Baldursson

Nicolas Jackson kvaddi Bayern

Nicolas Jackson kvaddi Bayern
Canon

Mynd: EPA

Senegalski framherjinn Nicolas Jackson kvaddi stuðningsmenn FC Bayern eftir síðasta deildarleik tímabilsins.
Bayern rúllaði yfir Ísak Bergmann Jóhannesson og félaga frá Köln í leik þar sem lokatölur urðu 5-1. Harry Kane skoraði þrennu og kom Nicolas Jackson inn af bekknum á 83. mínútu og skoraði nokkrum sekúndum síðar.

Jackson er hjá Bayern á lánssamningi frá Chelsea en Þýskalandsmeistararnir ætla ekki að festa kaup á Senegalanum. Hann heldur því aftur til Chelsea eftir tímabilið.

Það vakti athygli í þegar Bayern fékk Jackson á láni í fyrra að þýska stórveldið borgaði 16,5 milljónir evra fyrir lánssamning. Bayern getur keypt framherjann fyrir 65 milljónir til viðbótar, en ætlar ekki að nýta kaupmöguleikann.

Jackson hefur verið varaskeifa fyrir Kane allt tímabilið og hefur staðið sig vel, með 11 mörk og 4 stoðsendingar á 1400 spiluðum mínútum. Það er að meðaltali mark eða stoðsending á hverjar 90 spilaðar mínútur.

Bayern á enn eftir að spila einn leik á tímabilinu, úrslitaleik þýska bikarsins gegn Stuttgart. Sá leikur fer fram á Ólympíuleikvanginum í Berlín næsta laugardag.

Staðfestir að Jackson muni yfirgefa Bayern
TENGT EFNI

Staðfestir að Jackson muni yfirgefa Bayern



Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.