Ætlar að fá Kvaratskhelia til Real Madrid - Ngumoha ekki til sölu - Mourinho vill Bernardo Silva
   þri 19. maí 2026 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
England í dag - Afdrifaríkir leikir í kvöld
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Það er gríðarlega mikil eftirvænting fyrir leikjum kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni þar sem titilbaráttan og fallbaráttan geta ráðist, ásamt baráttunni um síðasta lausa sætið í Meistaradeild Evrópu.

Bournemouth tekur á móti Manchester City í afar spennandi slag. Heimamenn þurfa sigur til að halda Meistaradeildarbaráttunni á lífi á meðan gestirnir þurfa sigur til að halda titilbaráttunni á lífi. Það er því ljóst að ekkert verður gefið eftir.

Tap hjá Bournemouth myndi tryggja Liverpool þátttöku í deildarkeppni Meistaradeildarinnar næsta haust á meðan tap hjá Man City myndi tryggja Arsenal langþráðan Englandsmeistaratitil.

Chelsea og Tottenham eigast svo við í Lundúnaslag og er mikið undir fyrir bæði lið. Heimamenn þurfa á sigri að halda í Evrópubaráttunni, Chelsea er aðeins þremur stigum frá Sambandsdeildinni og fjórum frá Evrópudeildinni.

Tottenham er í fallbaráttu og nægir jafntefli til að svo gott sem tryggja sér áframhaldandi þátttöku í úrvalsdeildinni á næstu leiktíð.

Leikir kvöldsins
18:30 Bournemouth - Man City
19:15 Chelsea - Tottenham
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 38 26 7 5 71 27 +44 85
2 Man City 38 23 9 6 77 35 +42 78
3 Man Utd 38 20 11 7 69 50 +19 71
4 Aston Villa 38 19 8 11 56 49 +7 65
5 Liverpool 38 17 9 12 63 53 +10 60
6 Bournemouth 38 13 18 7 58 54 +4 57
7 Sunderland 38 14 12 12 42 48 -6 54
8 Brighton 38 14 11 13 52 46 +6 53
9 Brentford 38 14 11 13 55 52 +3 53
10 Chelsea 38 14 10 14 58 52 +6 52
11 Fulham 38 15 7 16 47 51 -4 52
12 Newcastle 38 14 7 17 53 55 -2 49
13 Everton 38 13 10 15 47 50 -3 49
14 Leeds 38 11 14 13 49 56 -7 47
15 Crystal Palace 38 11 12 15 41 51 -10 45
16 Nott. Forest 38 11 11 16 48 51 -3 44
17 Tottenham 38 10 11 17 48 57 -9 41
18 West Ham 38 10 9 19 46 65 -19 39
19 Burnley 38 4 10 24 38 75 -37 22
20 Wolves 38 3 11 24 27 68 -41 20
Slapp
banner
banner