Ætlar að fá Kvaratskhelia til Real Madrid - Ngumoha ekki til sölu - Mourinho vill Bernardo Silva
Hákon Arnar: Vona að Messi spili
Gylfi um skilaréttsmálið: Meira en ánægður að hafa skipt
Aron Einar: Get staðfest að ég verð ekki áfram í Al-Gharafa
Sædís Rún: Á okkar degi getum við náð stigum af öllum liðum
Gagnrýnir nýju reglurnar harðlega - „Alveg skelfilegt ef ég á að vera hreinskilin“
Katla Tryggva fyrir Spánarleikinn: Það er alveg hægt að stríða þeim
Hödda langaði að fagna eins og Auðun gegn Haukum - „Allir á bekknum brjálaðir að hann hefði skotið"
Breki Þór: Gott í bankann
Elfar Árni: Það þýðir ekkert að fara að vorkenna sér
Badu: Við sýndum í dag að við erum með góðan hóp
Gunnar Már: Við munum ekki geta hvílt leikmenn
Viðar Örn: Ég hlakka mikið til að spila með honum í næstu leikjum
Óli Flóvents: Þetta mál er að baki
Venni: Þurfum að höndla það betur en síðast
Heimir Guðjóns: Þurfum að finna lausnir
Siggi Lár: Gaman að vera í Laugardalnum
Horfðu á Besta spjallið - Staða mála skoðuð í landsleikjahlénu
Pablo Punyed sáttur: Vona að ég sjálfur geti spilað minna og minna í sumar
Gaui Lýðs um uppganginn á Ásvöllum: Setjum stefnuna á að komast í efstu deild
Nemanja Pjevic: Þegar maður bíður eftir strætó koma þeir allt í einu þrír í einu
   mán 18. maí 2026 22:17
Baldvin Már Borgarsson
Venni: Æðislegt að hann taki þátt í þessu með okkur
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ég er svekktur yfir því að vinna ekki þennan leik," sagði Sigurvin Ólafsson, þjálfari Þróttar, eftir 1-1 jafntefli gegn Leikni í 4. umferð Lengjudeildarinnar í kvöld.

Lestu um leikinn: Þróttur R. 1 -  1 Leiknir R.

Það má segja að tréverkið hafi ekki verið í liði með Þrótti.

„Við skutum allavega tvisvar í það og svo varði Óli Íshólm (markvörður Leiknis) alveg stórkostlega einu sinni. Það má með sanni segja að þetta hafi verið stöngin út."

Þó Sigurvin hafi verið svekktur með úrslitin var hann ánægður með frammistöðuna og er einnig sáttur með uppskeruna, 10 stig af 12 mögulegum.

„Þetta er fín byrjun og ég get ekki kvartað."

Aron Jóhannsson kom inn sem varamaður í seinni hálfleik en þessi reynslumikli leikmaður sem lék með Aftureldingu hefur ákveðið að hætta við leggja skóna á hilluna.

„Það er æðislegt að hann taki þátt í þessu með okkur. Hann er allur af vilja gerður til að leggja sitt af mörkum. Hann er bara nýkominn til æfinga og var aldrei að fara að spila meira en hann gerði í dag."

Viðtalið má sjá í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan en þar ræðir Venni meðal annars um það af hverju Aron Snær Ingason var tekinn af velli, um Örn Braga sem hefur byrjað mótið frábærlega og um aukna reynslu í leikmannahópi Þróttar.
Slapp
banner
banner
banner