Benjamin Pavard er búinn að staðfesta að hann yfirgefur Marseille eftir að hafa leikið fyrir liðið á lánssamningi.
Pavard kom á láni frá Inter í fyrra með 15 milljón evru kaupmöguleika sem Marseille ætlar ekki að nýta sér, þó að Pavard hafi verið fastamaður í byrjunarliðinu á tímabilinu.
Pavard er 30 ára bakvörður sem getur einnig spilað sem miðvörður. Hann gerði garðinn frægan með franska landsliðinu og Stuttgart áður en hann var keyptur til FC Bayern.
Pavard er ekki í framtíðaráformum Inter og vilja nýkrýndir Ítalíumeistarar losna við hann sem fyrst til að koma honum af launaskrá hjá sér.
Galatasaray, Fenerbahce og Sádi-Arabía eru sögð vera áhugasöm um að kaupa Frakkann í sumar en félög á Englandi og í Þýskalandi hafa einnig verið nefnd til sögunnar.
Launakröfur Pavard eru nokkuð háar þar sem hann fær um 100 þúsund evrur útborgaðar eftir skatt í vikulaun hjá Inter.
Inter fyllti í skarðið fyrir Pavard með að kaupa Manuel Akanji úr röðum Manchester City.



