Ætlar að fá Kvaratskhelia til Real Madrid - Ngumoha ekki til sölu - Mourinho vill Bernardo Silva
   mán 18. maí 2026 19:40
Ívan Guðjón Baldursson
Ekki bara Tottenham sem vill Palhinha
Mynd: EPA
Portúgalska stórveldið Sporting CP fylgist náið með miðjumanninum Joao Palhinha sem er hjá Tottenham á lánssamningi sem gildir út tímabilið.

Palhinha hefur verið einn af betri leikmönnum tímabilsins í fallbaráttuliði Tottenham og hefur úrvalsdeildarfélagið möguleika á því að festa kaup á Portúgalanum fyrir 26 milljónir punda.

Tottenham vill kaupa Palhinha þar sem Roberto De Zerbi þjálfari er mjög hrifinn af honum sem leiðtoga á miðjunni, en óljóst er hvort leikmaðurinn sjálfur kjósi að spila fyrir Tottenham eða haldi frekar á önnur mið.

Tottenham er einu stigi frá því að bjarga sér frá falli úr úrvalsdeildinni þegar tveir leikir eru eftir. Liðið á eftir að spila útileik gegn Chelsea og heimaleik við Everton.

Palhinha er með tvö ár eftir af samningi sínum við FC Bayern en er ekki partur af framtíðaráformum Þýskalandsmeistaranna. Ljóst er að ef hann kýs að fara ekki til Tottenham verður hann settur aftur á sölulista hjá Bayern.

Palhinha verður 31 árs í sumar og gæti haft áhuga á að skipta aftur til Sporting þar sem hann hóf ferilinn sem atvinnumaður í fótbolta. Palhinha var aðeins 17 ára gamall þegar hann gekk til liðs við Sporting í fyrsta sinn.

Nottingham Forest og Besiktas eru einnig sögð vera áhugasöm um að tryggja sér krafta Palhinha.

   08.05.2026 09:00
Vill halda Palhinha áfram hjá Tottenham

Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 38 26 7 5 71 27 +44 85
2 Man City 38 23 9 6 77 35 +42 78
3 Man Utd 38 20 11 7 69 50 +19 71
4 Aston Villa 38 19 8 11 56 49 +7 65
5 Liverpool 38 17 9 12 63 53 +10 60
6 Bournemouth 38 13 18 7 58 54 +4 57
7 Sunderland 38 14 12 12 42 48 -6 54
8 Brighton 38 14 11 13 52 46 +6 53
9 Brentford 38 14 11 13 55 52 +3 53
10 Chelsea 38 14 10 14 58 52 +6 52
11 Fulham 38 15 7 16 47 51 -4 52
12 Newcastle 38 14 7 17 53 55 -2 49
13 Everton 38 13 10 15 47 50 -3 49
14 Leeds 38 11 14 13 49 56 -7 47
15 Crystal Palace 38 11 12 15 41 51 -10 45
16 Nott. Forest 38 11 11 16 48 51 -3 44
17 Tottenham 38 10 11 17 48 57 -9 41
18 West Ham 38 10 9 19 46 65 -19 39
19 Burnley 38 4 10 24 38 75 -37 22
20 Wolves 38 3 11 24 27 68 -41 20
Slapp
banner
banner
banner