Jafnt í Laugardal
Þremur fyrstu leikjum kvöldsins er lokið í Lengjudeild karla þar sem Afturelding fór með sigur af hólmi gegn Gróttu á Seltjarnarnesi.
Það var fjörugur leikur þar sem heimamenn byrjuðu betur en gestirnir tóku forystuna á 24. mínútu þegar Bart Kooistra skallaði fyrirgjöf frá Birki Má Sævarssyni í netið. Fjórum mínútum síðar tvöfaldaði Elmar Kári Cogic forystuna með laglegu marki beint úr aukaspyrnu.
Grótta skapaði sér nokkur færi en tókst ekki að minnka muninn fyrir leikhlé svo staðan var 0-2. Gæðamunur einstakra leikmanna skildi liðin að eftir nokkuð jafnan fyrri hálfleik.
Mosfellingar virtust sáttir með að liggja til baka og beita skyndisóknum og tókst heimamönnum loks að minnka muninn í síðari hálfleik þegar Grímur Ingi Jakobsson skoraði með hnitmiðuðu skoti af 20 metra færi.
Hraðinn í leiknum jókst mikið eftir markið hans Gríms og voru góð færi á báða bóga en boltinn rataði ekki í netið. Seltirningar sóttu stíft á lokamínútunum og komust næst því að jafna þegar Mattías Kjeld átti skot í slána af um 25 metra færi.
Tíminn vann með Aftureldingu og tókst þeim að innsigla sigurinn á 90. mínútu eftir að Bart Kooistra reyndi að eyða tíma með boltann við hornfánann. Eftir mikinn barning slapp Bart framhjá varnarmönnum Gróttu og gaf boltann á Óðinn Bjarkason sem var einn og óvaldaður og skoraði af stuttu færi. Lokatölur 1-3.
Afturelding er komin með sjö stig eftir fjórar fyrstu umferðir tímabilsins á meðan Grótta situr eftir með þrjú stig.
Grótta 1 - 3 Afturelding
0-1 Bart Kooistra ('24)
0-2 Elmar Kári Enesson Cogic ('28)
1-2 Grímur Ingi Jakobsson ('62)
1-3 Óðinn Bjarkason ('90)
Lestu um leikinn: Grótta 1 - 3 Afturelding
Fylkir vann þá afar dramatískan sigur á heimavelli gegn ÍR eftir að staðan hafði verið jöfn stærsta hluta leiksins. Máni Austmann Hilmarsson tók forystuna fyrir heimamenn eftir skyndisókn snemma leiks en gestirnir úr Breiðholti jöfnuðu 20 mínútum síðar eftir mikinn klaufagang í vörn Árbæinga.
Orri Sveinn Segatta fyrirliði og Ólafur Kristófer Helgason markvörður voru að berjast um sama bolta en enduðu á að skella á hvor öðrum svo boltinn hélt áfram til Víðis Freys Ívarssonar sem þakkaði fyrir sig með jöfnunarmarki af stuttu færi.
Seinni hálfleikurinn var nokkuð jafn þar sem bæði lið fengu góð færi til að gera sigurmark en allt virtist stefna í jafntefli þar til Nikulás Val Gunnarsson skoraði flautumark fyrir heimamenn á síðustu sekúndu leiksins. Fylkir fékk hornspyrnu og barst boltinn til Nikulásar eftir skallatennis og skoraði hann af stuttu færi.
Lokatölur urðu því 2-1 fyrir Fylki sem er með 9 stig eftir 4 umferðir og skilur ÍR-inga eftir með 4 stig.
Fylkir 2 - 1 ÍR
1-0 Máni Austmann Hilmarsson ('6)
1-1 Víðir Freyr Ívarsson ('26)
2-1 Nikulás Val Gunnarsson ('93)
Lestu um leikinn: Fylkir 2 - 1 ÍR
Að lokum skildu Þróttur R. og Leiknir R. jöfn í spennandi Reykjavíkurslag í Laugardalnum.
Heimamenn í liði Þróttar, sem mættu til leiks með fullt hús stiga, voru sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og sköpuðu mikla hættu skömmu fyrir leikhlé en tókst ekki að taka forystuna.
Í síðari hálfleik náðu gestirnir forystunni þegar Shkelzen Veseli átti marktilraun utan vítateigs sem breytti um stefnu af varnarmanni og sveif yfir Aron Dag Birnuson markvörð.
Þróttarar fengu tvö góð tækifæri til að jafna áður en Vilhjálmur Kaldal Sigurðsson kom boltanum í netið eftir undirbúning frá Kára Kristjánssyni, sem hafði skömmu áður átt skot í innanverða stöngina.
Þróttarar reyndu að ná í sigurmarkið en höfðu ekki erindi sem erfiði og lokatölur urðu 1-1. Leiknismenn vörðust vel og hjálpaði smá heppni þeim að ná í stig.
Þróttur trónir á toppi Lengjudeildarinnar með 10 stig eftir 4 umferðir. Leiknir er með 5 stig.
Þróttur R. 1 - 1 Leiknir R.
0-1 Shkelzen Veseli ('52)
1-1 Vilhjálmur Kaldal Sigurðsson ('69)
Lestu um leikinn: Þróttur R. 1 - 1 Leiknir R.




