Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   þri 19. maí 2026 17:36
Ívan Guðjón Baldursson
Byrjunarlið Bournemouth og City: Pep gerir taktíska breytingu
Tyler Adams stígur inn í miðjuna hjá Bournemouth fyrir Ryan Christie.
Tyler Adams stígur inn í miðjuna hjá Bournemouth fyrir Ryan Christie.
Mynd: EPA
Þetta er aðeins annar byrjunarliðsleikurinn hjá Kovacic á meiðslahrjáðu tímabili.
Þetta er aðeins annar byrjunarliðsleikurinn hjá Kovacic á meiðslahrjáðu tímabili.
Mynd: EPA
Bournemouth og Manchester City eigast við í gríðarlega mikilvægum úrvalsdeildarslag og hafa byrjunarliðin verið tilkynnt.

Heimamenn í Bournemouth þurfa á sigri að halda til að halda Meistaradeildardraumi sínum á lífi á meðan gestirnir frá Manchester þurfa sigur til að eiga áfram möguleika í titilbaráttunni.

Þetta er kveðjuleikur Andoni Iraola á heimavelli þar sem hann ætlar að yfirgefa Bournemouth þegar samningur hans rennur út í sumar. Hann gerir eina breytingu á byrjunarliðinu sem hafði betur gegn Fulham fyrir rúmri viku þar sem Tyler Adams kemur inn fyrir Ryan Christie sem er í leikbanni.

Pep Guardiola, þjálfari Man City og samlandi Iraola, er einnig að kveðja City í sumar og er ljóst að þessir tveir eru meðal allra eftirsóttustu þjálfara fótboltaheimsins.

Pep gerir tvær breytingar á byrjunarliði City sem vann Chelsea í úrslitaleik FA bikarsins um helgina. Gianluigi Donnarumma kemur inn fyrir James Trafford á milli stanganna og þá kemur Mateo Kovacic inn í byrjunarliðið fyrir Omar Marmoush.

Pep gerir þessa breytingu eflaust til að þétta miðjuna en Rayan Cherki byrjar á bekknum þriðja leikinn í röð þrátt fyrir að hafa verið meðal bestu leikmanna City undanfarnar vikur.

Antoine Semenyo er á sínum stað úti á vængnum hjá City gegn sínum fyrrum liðsfélögum.

Bournemouth: Petrovic, Smith, Senesi, Hill, Truffert, Adams, Scott, Tavernier, Kroupi Jr, Rayan, Evanilson.
Varamenn: Mandas, Cook, Brooks, Gannon-Doak, Diakite, Kluivert, Adli, Enes Unal, Toth.

Man City: Donnarumma, Nunes, Khusanov, Guehi, O’Reilly, Rodri, Kovacic, Bernardo, Semenyo, Doku, Haaland.
Varamenn: Trafford, Dias, Reijnders, Stones, Marmoush, Cherki, Gvardiol, Savinho, Foden.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 38 26 7 5 71 27 +44 85
2 Man City 38 23 9 6 77 35 +42 78
3 Man Utd 38 20 11 7 69 50 +19 71
4 Aston Villa 38 19 8 11 56 49 +7 65
5 Liverpool 38 17 9 12 63 53 +10 60
6 Bournemouth 38 13 18 7 58 54 +4 57
7 Sunderland 38 14 12 12 42 48 -6 54
8 Brighton 38 14 11 13 52 46 +6 53
9 Brentford 38 14 11 13 55 52 +3 53
10 Chelsea 38 14 10 14 58 52 +6 52
11 Fulham 38 15 7 16 47 51 -4 52
12 Newcastle 38 14 7 17 53 55 -2 49
13 Everton 38 13 10 15 47 50 -3 49
14 Leeds 38 11 14 13 49 56 -7 47
15 Crystal Palace 38 11 12 15 41 51 -10 45
16 Nott. Forest 38 11 11 16 48 51 -3 44
17 Tottenham 38 10 11 17 48 57 -9 41
18 West Ham 38 10 9 19 46 65 -19 39
19 Burnley 38 4 10 24 38 75 -37 22
20 Wolves 38 3 11 24 27 68 -41 20
Slapp
banner
banner
banner