Fotbolti.net
19.05.26 - 07:00
Ívan Guðjón Baldursson

Olise bestur í þýsku deildinni - Kane markahæstur

Olise bestur í þýsku deildinni - Kane markahæstur
Canon

Mynd: EPA

Þýska deildartímabilinu lauk um helgina og var franski kantmaðurinn Michael Olise verðlaunaður fyrir að vera besti leikmaður tímabilsins.
Olise, sem er 24 ára gamall, skoraði 15 mörk og gaf 19 stoðsendingar í 32 leikjum er Bayern vann enn einn Þýskalandsmeistaratitilinn.

Stoðsendingafjöldinn hækkar um tvo þegar allar tegundir stoðsendinga eru taldar með eins og tíðkast á vefsíðu transfermarkt, þar sem Olise hefur líklegast fiskað tvær vítaspyrnur fyrir Harry Kane á deildartímabilinu.

Margir fótboltaunnendur bjuggust við að Kane yrði titlaður sem leikmaður tímabilsins í Þýskalandi en svo var ekki, þrátt fyrir að enski framherjinn hafi skorað 36 mörk í 31 deildarleik og gefið 5 stoðsendingar. Deniz Undav er næstmarkahæstur með 19 mörk.

Kane er því markakóngur þýsku deildarinnar eins og hann hefur verið á hverju ári frá félagaskiptum sínum til Bayern. Í heildina er hann kominn með 98 mörk og 23 stoðsendingar í 94 deildarleikjum með stórveldinu.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Bayern34+8689
1Borussia D.2+56
2Bayern2+46
2Borussia D.34+3673
3RB Leipzig34+1965
3Hamburger2+36
4Stuttgart34+2262
4Borussia M.2+14
5Hoffenheim2+14
5Hoffenheim34+1361
6Bayer34+2159
6Freiburg2+14
7Freiburg34-647
7Schalke 041+23
8Hannover1+13
8Eintracht Frankfurt34-444
9Augsburg34-1643
9Hertha203
10Stuttgart2-13
10Mainz34-940
11Wolfsburg2-23
11Union Berlin34-1439
12Borussia M.34-1138
12Augsburg2-11
13Hamburger34-1438
13Eintracht Frankfurt2-11
14Koln34-1432
14Bayer2-21
15Mainz2-20
15Werder34-2332
16Koln2-30
16Wolfsburg34-2429
17RB Leipzig2-30
17Heidenheim34-3126
18St. Pauli34-3126
18Werder2-30
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.