Fallið lið Burnley hefur verið að spila vel undir stjórn bráðabirgðaþjálfarans Michael Jackson.
Eftir tap gegn Leeds í fyrsta leik Jackson við stjórnvölinn náði Burnley jafntefli við Aston Villa og sýndi svo flotta frammistöðu í naumu tapi gegn Arsenal í kvöld.
„Við höfum verið að sýna jákvæðar frammistöður í síðustu leikjum. Margir héldu að leikmenn myndu bara klukka sig út eftir fallið en þeir eru ekki að gera það. Það getur enginn sakað strákana um að leggja ekki allt í sölurnar í lokaumferðunum og ég er mjög ánægður með það. Strákarnir hafa verið samkeppnishæfir gegn mjög sterkum andstæðingum síðustu tvo leiki og það gerir mig mjög stoltan," sagði Mike Jackson eftir tapið gegn Arsenal.
„Þeir sönnuðu það í kvöld og í síðasta leik að þeir eiga heima í efstu deild. Við vorum óheppnir að tapa gegn titilbaráttuliði í dag, lokakaflinn hefði spilast öðruvísi ef ekki fyrir slappa dómaraákvörðun.
„Þið vitið hvaða ákvörðun ég er að tala um, þetta er hættuleg tækling sem á alltaf að leiða til rauðs spjalds. Ég skil ekki hvernig hann fékk bara gult. Þessi tækling hefði getað leitt til alvarlegra meiðsla. Það hefði aukið líkurnar okkar á að ná inn jöfnunarmarki ef þeir hefðu verið leikmanni færri síðustu 20 mínúturnar. Þetta er enn ein stóra ákvörðunin sem fellur gegn okkur á tímabilinu, þetta hefur verið svona allt tímabilið."
18.05.2026 22:08
Sjáðu atvikin: Havertz slapp við rautt - Átti Arsenal að fá víti?




