Man Utd og Chelsea hafa áhuga á Adeyemi - Real Madrid horfir til Gvardiol - Liverpool vill Dumfries
   þri 19. maí 2026 09:05
Kári Snorrason
Maresca tekur við af Pep
Enzo Maresca.
Enzo Maresca.
Mynd: EPA
Enzo Maresca er sagður taka við Manchester City af Pep Guardiola fyrir næsta tímabil.

Eins og greint hefur verið frá mun Pep Guardiola að öllum líkindum yfirgefa City eftir tímabil. Enskir miðlar keppast nú um að slá því föstu að Enzo Maresca taki við liðinu í sumar.

Stjörnublaðamaðurinn Fabrizio Romano segir munnlegt samkomulag í höfn og er búinn að setja 'Here We Go' stimpilinn fræga á að Maresca taki við liðinu og að hann skrifi undir þriggja ára samning.

Sá ítalski þekkir vel til hjá félaginu eftir að hafa verið í starfsteymi City 2022/23 tímabilið og áður hjá akademíu City.

Maresca var síðast stjóri Chelsea og kom liðinu í Meistaradeildina á síðasta tímabili. Hann sagði upp í byrjun árs vegna ágreinings við yfirstjórn liðsins.


Slapp