Það voru tvö umdeild atvik sem áttu sér stað í mikilvægum sigri Arsenal gegn Burnley í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.
Markaskorari leiksins Kai Havertz var heppinn að sleppa við að fá rautt spjald fyrir heimskulega og hættulega tæklingu á Lesley Ugochukwu í síðari hálfleik.
Havertz fékk gult spjald og var atvikið skoðað gaumgæfilega í VAR-herberginu en að lokum var leyft upprunalegri ákvörðun Paul Tierney að standa.
Sjáðu atvikið
Síðar í leiknum kom Piero Hincapié inn af bekknum fyrir Riccardo Calafiori til að leysa vinstri bakvarðarstöðuna af hólmi. Hincapié slapp innfyrir vörn Burnley og féll til jarðar innan vítateigs og heimtaði vítaspyrnu, en fékk ekki.
Hincapié endaði hálfnakinn eftir viðskipti sín við Axel Tuanzebe, sem var aldrei nálægt boltanum og virtist fella Hincapié nokkuð augljóslega áður en hann traðkaði af honum stuttbuxurnar, en ekkert var dæmt.
Arsenal's Piero Hincapie penalty shout 77'
by
u/MoreMotivation in
soccer



