Ætlar að fá Kvaratskhelia til Real Madrid - Ngumoha ekki til sölu - Mourinho vill Bernardo Silva
Hákon Arnar: Vona að Messi spili
Gylfi um skilaréttsmálið: Meira en ánægður að hafa skipt
Aron Einar: Get staðfest að ég verð ekki áfram í Al-Gharafa
Sædís Rún: Á okkar degi getum við náð stigum af öllum liðum
Gagnrýnir nýju reglurnar harðlega - „Alveg skelfilegt ef ég á að vera hreinskilin“
Katla Tryggva fyrir Spánarleikinn: Það er alveg hægt að stríða þeim
Hödda langaði að fagna eins og Auðun gegn Haukum - „Allir á bekknum brjálaðir að hann hefði skotið"
Breki Þór: Gott í bankann
Elfar Árni: Það þýðir ekkert að fara að vorkenna sér
Badu: Við sýndum í dag að við erum með góðan hóp
Gunnar Már: Við munum ekki geta hvílt leikmenn
Viðar Örn: Ég hlakka mikið til að spila með honum í næstu leikjum
Óli Flóvents: Þetta mál er að baki
Venni: Þurfum að höndla það betur en síðast
Heimir Guðjóns: Þurfum að finna lausnir
Siggi Lár: Gaman að vera í Laugardalnum
Horfðu á Besta spjallið - Staða mála skoðuð í landsleikjahlénu
Pablo Punyed sáttur: Vona að ég sjálfur geti spilað minna og minna í sumar
Gaui Lýðs um uppganginn á Ásvöllum: Setjum stefnuna á að komast í efstu deild
Nemanja Pjevic: Þegar maður bíður eftir strætó koma þeir allt í einu þrír í einu
   mán 18. maí 2026 22:57
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson
Jóhann Birnir svekktur: Mér fannst þetta ekki vera aukaspyrna
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

„Auðvitað, ógeðslegt að tapa þessu með síðustu spyrnu leiksins" sagði Jóhann Birnir Guðmundsson, þjálfari ÍR eftir svekkjandi 2-1 tap á útivelli gegn Fylki.


Lestu um leikinn: Fylkir 2 -  1 ÍR

Heilt yfir, ertu ánægður með frammistöðuna?

„Já ég er mjög ánægður með frammistöðuna, mér fannst við vera mjög flottir á löngum köflum í leiknum. Vorum ekki að fá á okkur mikið af færum. Þetta var frekar jafn leikur, en í seinni hálfleik fannst mér við skapa töluvert hættulegri stöður heldur en þeir og færi í rauninni. En við náðum ekki að loka leiknum okkar megin."

ÍR fékk á sig jöfnunarmark gegn Grindavík á 89 mínútu í síðasta leik og Fylkir vann leikinn á 93 mínútu í kvöld.

Eru þið að missa fókus á þessum síðustu mínútum?

„Ég veit það nú ekki. Í fyrsta lagi fannst mér þetta vera skrýtin aukaspyrna sem hann dæmir út á velli, sem verður til þess að þeir ná að hengja boltann inn í teig. Við vissum það að það var tíu sekúndur eftir af leiknum, þannig að mér fannst það skrýtin aukaspyrna. En allavega við þurfum auðvitað að díla við það og allt það. En síðan hrekkur boltinn, kemur bara inn í og hrekkur á Fylkismanninn inn í markteig. Það getur alltaf gerst."

„Mér fannst þetta ekki vera aukaspyrna." 

Fullt viðtal í spilaranum fyrir ofan


Slapp
banner